Hljómsveitin Hatari hefur slegið í gegn í Söngvakeppni sjónvarpsins. Þar fara fremstir söngvararnir Klemens Hannigan og Matthías Tryggvi Haraldsson. Margir hafa velt fyrir sér hver hinn dularfulli ásláttarleikari með gaddagrímuna sé. Hann er Einar Hrafn Stefánsson, sem einnig ber húðir í hljómsveitinni Vök.
Faðir hans, Stefán Haukur Jóhannesson, hefur gert það gott á öðrum vettvangi. Stefán er sendiherra í Lundúnum. Hann hefur starfað fyrir Íslands hönd á alþjóðavettvangi lengi. Meðal annars var hann sendiherra í Brussel árin 2005 til 2010 og var aðalsamningamaður Íslands vegna viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Þá var hann einnig ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu.