fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fókus

Vígalegir öryggisverðir og fáklæddar konur með lambhúshettur á Arnarnesinu

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Mánudaginn 12. desember 2016 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tökur stóðu yfir á Arnarnesi og í bílakjallara í Kópavogi um helgina á nýju myndbandi sem ætlað er að kynna íslenska hönnunarmerkið Gyðja Collection. Þar mátti sjá leikara klædda sem vígalega öryggisverði og konur hlaupandi um með lambhúshettur og í hermannabuxum.

Sigrún Lilja segir að mikil leynd hafi hvílt yfir myndbandinu: „Slagsmál, byssur og svartur van komu við við sögu. En það var meðal annars hægt að fylgjast með tökum á snappinu mínu, @theworldofgydja

Sigrún Lilja segir:

„Tökudagur tvö var í gær en þetta hefur gengið vonum framar. Við erum með ótrúlega magnaða leikara sem standa sig eins og hetjur þrátt fyrir að þurfa að vera léttklædd í kulda og slást í erfiðum senum,“ segir Sigrún og bætir við.

„Það er girlpower fílingur enda stendur Gyðja Collection fyrir það. Strákarnir hafa þurft að taka við höggum og standa sig eins og hetjur á meðan. Þeir hafa mjög gaman að því að sjá konur rústa þeim í bardögum. Þeir hafa hvatt þær óspart áfram þegar þeir hafa legið kylliflatir eftir högg þeirra.“

Sigrún segir einn leikarann hafa orðið fyrir föstu höggi sem hann fékk á barkakýlið.

„Það munaði minnstu að við hefðum þurft að kalla á sjúkrabíl en sem betur fer jafnaði hann sig og það endaði með knúsi hjá honum og gerandanum en hún var í hálfgerðu áfalli eftir þetta.“

Javier Fernandez valiño sem ættaður er frá Spáni er framleiðandi myndbandsins en hann er með framleiðslu fyrirtækið GS PRODS. ásamt því að vera þekktur dansari og tónlistarframleiðandi og leikari eru ásamt því að vera íslenskir frá öllum heimshornum.

Þar má sjá Juan Ramon Borges Bosque frjáls íþróttamann frá Kúbu og Dario Tomas Bardales araujo dansara og tónlistarmann frá Ecuador ásamt Kristínu Elísabetu Gunnarsdóttur keppanda í módelfitness, Hörpu Lind Ingadóttur sirkús listakonu, Björn Sveinbjörnsson lögreglumann og Arnrúnu Berg fyrirsætu.

Sigrún Lilja bætir við að myndbandið sé stuttmynd eða tónlistarmyndband fyrir nýja vegan töskulínu og veskjalínu Gyðju sem er að koma á markað í næstu viku.

„Þá er þetta líka auglýsing fyrir Gyðjuúr ársins en sjálfar Kardashian systur eru fyrstu konur í heiminum til að panta sér eintak.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ólafur Egill er aðstandandi einstaklings með fíknivanda – „Mín skoðun er sú að það þurfi að lögleiða þetta“

Ólafur Egill er aðstandandi einstaklings með fíknivanda – „Mín skoðun er sú að það þurfi að lögleiða þetta“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Vampíruleikarinn var í skuldasúpu – Svona náði hann sér réttu megin við núllið

Vampíruleikarinn var í skuldasúpu – Svona náði hann sér réttu megin við núllið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Friends hópurinn græðir enn ótrúlegar fjárhæðir á þáttunum

Friends hópurinn græðir enn ótrúlegar fjárhæðir á þáttunum
Fókus
Fyrir 1 viku

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“
Fókus
Fyrir 1 viku

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd
Fókus
Fyrir 1 viku

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt