fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fókus

Þessu átti Arnar Már ekki von á: „Gaman að sjá að þú nýtur bókarinnar“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Mánudaginn 12. desember 2016 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Már Vilhjálmsson var staddur á flugvellinum í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum að lesa bók eftir rithöfundinn vinsæla, Camillu Läckberg þegar sagt var:

„Gaman að sjá að þú nýtur bókarinnar.“

Arnar leit upp og sá þá að þarna var sænski höfundinn sjálfur kominn. Arnar lýsir þessari reynslu í samtali við RÚV en Camilla birtir einnig mynd af Arnari á Instagram-síðu sinni. Camilla er afar vinsæl á samskiptamiðlinum en um 160 þúsund manns eru aðdáendur hennar þar.

Camilla skrifar á Instagram að hún hafi það fyrir sið þegar hún rekst á fólk lesa bækur hennar að kasta á það kveðju. Arnar sendi Camillu skeyti undir myndinni og segir í lauslegri þýðingu:

„Það var afar gleðilegt að hitta þig svona óvænt Camilla. Þessu átti ég ekki von á, enda býst maður vanalega ekki við því að hitta höfund bókarinnar sem maður er að lesa í það skiptið. Ég bað ekki ekki einu sinni um eiginhandaráritun en mér til varnar, þá var ég illa sofinn. Þegar ég síðan segi vinum mínum frá þessu atviki, legg ég áherslu á að það varst þú sem nálgaðist mig og baðst um að fá að taka mynd :). Ég óska þér góðs gengis með næstu verk og hlakka til að lesa þær.“

Camilla óskaði svo eftir leyfi til að birta myndina á Instagram-síðu sinni þar sem hún hefur slegið í gegn.

//platform.instagram.com/en_US/embeds.js

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ólafur Egill er aðstandandi einstaklings með fíknivanda – „Mín skoðun er sú að það þurfi að lögleiða þetta“

Ólafur Egill er aðstandandi einstaklings með fíknivanda – „Mín skoðun er sú að það þurfi að lögleiða þetta“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“

Segir börn sín ekki fá Hollywood á silfurfati: Þurfa að „vinna sér það inn“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Vampíruleikarinn var í skuldasúpu – Svona náði hann sér réttu megin við núllið

Vampíruleikarinn var í skuldasúpu – Svona náði hann sér réttu megin við núllið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Friends hópurinn græðir enn ótrúlegar fjárhæðir á þáttunum

Friends hópurinn græðir enn ótrúlegar fjárhæðir á þáttunum
Fókus
Fyrir 1 viku

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“
Fókus
Fyrir 1 viku

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd

Fagna kristalbrúðkaupi með fallegri fjölskyldumynd
Fókus
Fyrir 1 viku

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig

Íslendingar hrifnastir af finnska laginu í Eurovision – Gefa Ísrael ekkert stig
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt

Stefán og Steinunn lentu í vandræðum en fengu þá hjálp úr óvæntri átt