fbpx
Þriðjudagur 14.október 2025
Fókus

Fimm fengu Fjöruverðlaunin

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 16. janúar 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða fyrr í dag.

Verðlaunin hlutu:

Í flokki fagurbókmennta: 
Ástin, Texas eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur

Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis:
Þjáningarfrelsið – óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur

Í flokki barna- og unglingabókmennta:
Fíasól gefst aldrei upp eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur

Þetta í þrettánda sinn sem Fjöruverðlaunin eru veitt og í fimmta sinn síðan borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna og bauð Dagur B. Eggertsson gesti velkomna og afhenti verðlaunahöfum blóm. Verðlaunahafar fá verðlaunagripi gerða af listakonunni Koggu.
Rökstuðningur dómnefnda

Ástin, Texas eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur (Bjartur, 2018)
Smásagnasafnið Ástin, Texas eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur geymir fimm smásögur sem láta ekki mikið yfir sér; þær eru lágstemmdar á yfirborðinu en undir niðri krauma miklar tilfinningar. Sögurnar hvefast allar um ástina og fjalla bæði um nánd og skortinn á henni. Þetta er fádæma vel gert; mannlýsingar eru trúverðugar og vekja samkennd með persónum og samskiptum þeirra er lýst af slíkri dýpt og næmi að þau láta lesandann vart ósnortinn. Þrátt fyrir erfitt viðfangsefni er stíllinn léttur, lipur og myndrænn og jafnan er stutt í húmorinn. Það er unun að lesa sagnasveiginn Ástin, Texas.

Þjáningarfrelsið – óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur (Mál og menning, 2018)
Bókin Þjáningarfrelsið – óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur, er mikilvægt og tímabært framlag til íslenskra bókmennta.  Í okkar fámenna landi sem annarstaðar í veröldinni er tjáningarfrelsi einn af helstu mælikvörðunum á frjálsræði borgaranna – þar sem við sögu koma afskipti stjórnmálaafla og eignarhald á fjölmiðlum með tilheyrandi  hagsmunaárekstrum.

Öllu máli skiptir að standa vörð um tjáningarfrelsið, og útgáfa bókarinnar Þjáningarfrelsið er liður í þeirri vöktun hérlendis. Í bókinni fáum við að kynnast heiminum að baki fréttaflutningum. Fjallað er um raunveruleg dæmi sem gefa innsýn í aðstæður sem blaðamenn geta átt við að etja í störfum sínum og áleitnar spurningar, hugmyndir og vangaveltur sem varða grunngildi fjölmiðlunar og stöðu fjölmiðla og tjáningarfrelsis á Íslandi í upphafi 21. aldarinnar.

Fíasól gefst aldrei upp eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur (Mál og menning, 2018)
Ærslabelgurinn Fíasól er flestum kunn enda er hér um að ræða sjöttu bókina í bókaflokkinum um þessa úrræðagóðu stelpu. Söguþráðurinn fléttast um hugmyndaauðgi Fíusólar sem vekur lesandann til umhugsunar og samræðna um ýmis alvarleg málefni sem tengjast réttindum barna. Umræða um siðferðileg álitamál er sett fram af barnslegri einlægni en um leið alvöru sem dýpkar undirtón sögunnar. Persónur bókarinnar eru ekki byggðar upp af staðalímyndum heldur eru þær lifandi og margræðar rétt eins og heimur Fíusólar.

Fíasól gefst aldrei upp er margslungin bók fyrir breiðan aldurshóp þar sem Kristín Helga Gunnarsdóttir dregur upp sannfærandi myndir af átökum og uppgötvunum í lífi Fíusólar, breyskleika hennar og styrk. Fíasól færir Kristínu Helgu Fjöruverðlaunin 2019.

***

Einnig voru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna 2019 bækurnar Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur ogKláði eftir Fríðu Ísberg í flokki fagurbókmennta; Krullað og klippt: Aldarsaga háriðna á Íslandi eftir Báru Baldursdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur ogSkiptidagar – Nesti handa nýrri kynslóð eftir Guðrúnu Nordal í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis; Lang-elstur í leynifélaginu eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Sjúklega súr saga eftir Sif Sigmarsdóttur og Halldór Baldursson í flokki barna- og unglingabókmennta.

Dómnefndir Fjöruverðlaunanna 2019 skipa Guðrún Lára Pétursdóttir, Jóna Guðbjörg Torfadóttir og Kristín Ástgeirsdóttir í flokki fagurbókmennta; Dalrún J. Eygerðardóttir, Sóley Björk Guðmundsdóttir og Unnur Jökulsdóttir í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis; og Arnþrúður Einarsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir og Sigrún Birna Björnsdóttir í flokki barna- og unglingabókmennta.

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Nýjar vendingar í skilnaðardrama ársins

Nýjar vendingar í skilnaðardrama ársins
Fókus
Í gær

Vikan á Instagram – Í sjokki hvað rassabuxurnar virka vel

Vikan á Instagram – Í sjokki hvað rassabuxurnar virka vel
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kótilettukvöld Samhjálpar – Fagna árangri fjölda fólks við að ná bata frá fíknisjúkdómnum

Kótilettukvöld Samhjálpar – Fagna árangri fjölda fólks við að ná bata frá fíknisjúkdómnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tvö íslensk söfn valin á lista þeirra undarlegustu í Evrópu – Enduðu í fyrsta og fjórða sæti

Tvö íslensk söfn valin á lista þeirra undarlegustu í Evrópu – Enduðu í fyrsta og fjórða sæti
Fókus
Fyrir 3 dögum

Game of Thrones stjarna var svipt sjálfræði eftir að hafa verið tæld í sértrúarsöfnuð

Game of Thrones stjarna var svipt sjálfræði eftir að hafa verið tæld í sértrúarsöfnuð
Fókus
Fyrir 3 dögum

Norðanvindurinn er dystópísk fantasía með krydduðu, ástarsögulegu ívafi

Norðanvindurinn er dystópísk fantasía með krydduðu, ástarsögulegu ívafi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Unga tónlistarkonan kyndir undir orðróm um ástarsamband með Keith Urban

Unga tónlistarkonan kyndir undir orðróm um ástarsamband með Keith Urban
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nicole Kidman opnar sig um erfiðleika og „óbærilegan sársauka“ í nýju viðtali

Nicole Kidman opnar sig um erfiðleika og „óbærilegan sársauka“ í nýju viðtali