Indónesíska fíkniefnastofnunin, BNN, segir að efni, sem eru notuð í dömubindi og bleiur, valdi því að fólki finnist það geta „flogið“ og fái ofskynjanir þegar það drekkur vökvann sem bindin og bleiurnar eru soðin í.
„Notuðu dömubindin, sem þau tóku úr ruslinu, voru sett í sjóðandi vatn. Eftir að það hafði kólnað drukku þau þetta.“
Er haft eftir talsmanni BNN. Strait Times skýrir frá þessu. Fram kemur að börn allt niður í 14 ára hafi verið handtekin vegna mála af þessu tagi en þau hafi verið í vímu eftir að hafa drukkið svona vökva. Talið er að bindin og bleiurnar séu látin sjóða í eina klukkustund en síðan er vökvinn látinn kólna áður en hann er drukkinn. Sumir drekka svona vökva þrisvar sinnum á dag. Heilbrigðisyfirvöld eru nú að rannsaka málið.