fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Bjargey um hamingju: „Ég hef upplifað mikinn sársauka og vildi ekki dvelja þar. Ég vildi frelsi“

Aníta Estíva Harðardóttir
Þriðjudaginn 20. febrúar 2018 20:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvers vegna finnst sumum allt vera erfitt og leiðinlegt á meðan öðrum finnst lífið almennt skemmtilegt og sjá það jákvæða í stað þess neikvæða. Hvað aðskilur þessa tvo einstaklinga?

Með þessum orðum hefur Bjargey Ingólfsdóttir nýjustu færslu sína á Bjargeyogco.

Af hverju ertu alltaf svona ógeðslega happý?

Um daginn fékk ég þessa spurningu frá fylgjanda í gegnum Snapchat og fékk hún mig til þess að hugsa. Til þess að svara henni þá er ég í fyrsta lagi ekkert alltaf ógeðslega happý. Ég hef farið í gegnum dimma dali og upplifað mikinn sársauka. Sársauka í hjartanu og verki í líkamanum. Ég vildi ekki dvelja þar, því það var vont. Ég vildi eitthvað meira og betra. Ég vildi frelsi. Að vera frjáls undan erfiðum hugsunum, verkjum og vanlíðan.

Bjargey greinir frá því að hún hafi valið sér vellíðan og hafið þannig ferðalag.

Það var ekki alltaf auðvelt, það komu tímar sem ég hélt að ég myndi hætta við og fara til baka. Ég valdi ekki sjúkdómana sem ég er að glíma við, en ég get valið hvernig viðhorf mitt er til þeirra og hvort ég takist á við áskoranirnar sem þeir færa mér daglega með jákvæðu hugarfari eða með neikvæðni og biturð. Mér leið eins og ég stæði á fjallstindi og ég gat valið um að taka áhættu, stökkva og fara í frelsið eða labba bara niður aftur og vera í myrkrinu.

Bjargey tók ákvörðun um að vera til staðar fyrir sjálfa sig og að hún þyrfti ekki að stökkva fyrr en hún væri tilbúin.

En það sem gerðist þegar ég var til staðar og hlustaði á hjartað mitt er að þá fékk ég svörin sem ég leitaði að.

Bjargey áttaði sig á því að hún gæti notað sinn innri styrk til þess að gera allt sem hana dreymir um.

Ég ætla að segja þér leyndarmál. Þú getur breytt öllu sem þú VILT breyta. Við getum breytt öllu sem við viljum með jákvæðni og trú á eigin getu.

Ef þú getur hugsað þá – þá getur þú það!

Jákvæðar hugsanir og væntumþykja í garð okkar sjálfra auðveldar okkur að gera þær breytingar á lífinu sem við viljum. Því meiri innri styrk sem við höfum þei mun auðveldara er að standa við sett markmið. Þú getur valið hamingju. Það er alltaf þitt val. Enginn annar en þú sjálf gerir þig hamingjusama. Það er ekki hægt að kaupa sér hamingju, þú færð hana heldur ekki að gjöf nema þú ákveðir að gefa þér hana sjálf.

Bjargey segir að sama hvort okkur gangi vel eða illa séum við eina manneskjan sem við getum raunverulega treyst á. Fengið styrk, kærleika og allt sem við þurfum frá okkur sjálfum.

Að dvelja í fortíðinni eða neikvæðum tilfinningum heldur okkur föstum. Frelsaðu hjarta þitt, það er val. Gríptu tækifærið þegar það gefst og taktu áhættu, mistök eru til þess að læra af þeim.

Bjargey telur að líðan okkar endurspegli hugarfar og viðhorf.

Ef okkur líður vel og við erum í jafnvægi er auðvelt að takast á við hindranir eða áskoranir. En ef okkur líður illa og við erum í ójafnvægi er erfitt að takast á við hindranir og okkur finnst þær jafnvel óyfirstíganlegar. Þannig geta smámunir orðið að stórum vandamálum ef við erum neikvæð.

Að lokum segir Bjargey að hugarfar hafi allt með það að gera hvort fólk sé hamingjusamt eða ekki.

Enginn getur gert þig hamingjusama nema þú sjálf. Að upplifa sanna gleði, ást og hamingju er val. Hvað ætlar þú að velja?

Hægt er að fylgjast með Bjargey á Snapchat: bjargeyogco

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Hafði furðað sig á liðsfélögum Gylfa – „Loksins“

Hafði furðað sig á liðsfélögum Gylfa – „Loksins“
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“

Stórbrotið atvik í Pallborði Vísis – „Þetta er fáránleg spurning“
Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn

Horfðu á nýjasta þátt af Íþróttavikunni – Sérfræðingurinn í heimsókn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“

Heitar umræður um subbulegt brot Grétars – „Það er lukka fyrir Adam Ægi að standa ekki í báðar lappirnar“
Fókus
Fyrir 18 klukkutímum

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.