Catalina M. Ncogo, eða Svarta perlan tjáir sig á Snapchat um hið hræðilega níðingsmál sem greint var frá í vikunni. Maður á fimmtugsaldri sem hefur starfað með börnum um tuttugu ára skeið hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi gegn pilti og öðrum börnum.
Fyrst var maðurinn kærður fyrir kynferðisbrot árið 2013 vegna brota sem áttu að hafa átt sér stað á árunum 2000 til 2006. Maðurinn hélt áfram að starfa fyrir barnavernd og fékk ekki upplýsingar um kæruna frá lögreglu. Catalina birti frétt Stöðvar 2 á Snapchat reikningi sínum. Segir hún málið vera allt hið sorglegasta. Hún kveðst þó vita lausnina til að draga úr kynferðislegri misnotkun. Catalina varð alræmd á Íslandi í ársbyrjun 2009 í kjölfar frétta af umfangsmikilli vændisstarfsemi sem hún rak á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Catalina segir á Snapchat:
„Sorglegt hversu margir eru veikir í höfðinu. Ísland þarf á fylgdarþjónustum að halda, það mun hjálpa landinu að stöðva allt þetta veika fólk. Þetta er svo sorglegt mál.“