fbpx
Sunnudagur 21.desember 2025
433Sport

Stuðningsmenn hafa áhyggjur af Gylfa – Sjáðu hvað hann þurfti eftir leik

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 11. nóvember 2018 19:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðjumaðurinn Jorginho var mögulega heppinn að fá ekki rautt spjald í jafntefli gegn Everton í dag.

Jorginho lék með Chelsea í markalausu jafntefli en hann átti alls ekki sinn besta leik á Stamford Bridge.

Jorginho fór í groddaralega tæklingu í fyrri hálfleik en hann tók þá Gylfa Þór Sigurðsson niður sem lá sárþjáður eftir í grasinu.

Gylfi þurfi að fara af velli í síðari hálfleik en hann haltraði að hliðarlínunni og er útlitið ekki of gott.

Miðað við myndir af Gylfa eftir leikinn í London er möguleiki á því að okkar maður sé meiddur á ökkla.

Eins og má sjá hér fyrir neðan þurfti Gylfi að verja ökklann eftir leikinn er hann yfirgaf völlinn.

Það er þó ekkert komið á hreint ennþá en íslenska landsliðið á leiki gegn Belgíu og Katar í mánuðinum.

Það væri mikið áfall að missa Gylfa úr hópnum en Jóhann Berg Guðmundsson meiddist í leik með Burnley í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Ársþingið fyrir austan í lok febrúar

Ársþingið fyrir austan í lok febrúar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Elías Már skrifar undir í Víkinni

Elías Már skrifar undir í Víkinni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Túfa hafnaði ÍBV og er á leið til Svíþjóðar

Túfa hafnaði ÍBV og er á leið til Svíþjóðar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Slot þurfti enn og aftur að svara spurningum um Salah

Slot þurfti enn og aftur að svara spurningum um Salah