Misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja er faraldur á Íslandi, og í dag gaf Minningarsjóður Einars Darra út fimmta forvarnarmyndbandið þar sem minnt er á þá óhuggulegu staðreynd.
Í því er rætt við Bjarka Aron Sigurðsson, 21 árs leiðbeinanda á leikskóla, Guðmund Fylkisson, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem leitar að týndu börnunum, Kristján E. Björgvinsson 19 ára nemanda við Fjölbrautaskólann við Ármúla, Ómar Frey Söndruson, íshokkíleikmann og þjálfara, Valgerði Rúnarsdóttur forstjóra sjúkrahússins Vogs og Magneu Rós, 19 ára nemanda í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ.
Í myndbandinu kemur fram að aukning er í notkun lyfseðilsskyldra lyfja meðal ungmenna og oft eru þau notuð með annarri neyslu.
Myndbandið er það fimmta af nokkrum sem Minningarsjóður Einars Darra mun gefa út.
Lestu einnig: Minningarsjóður Einars Darra gefur út forvarnarmyndband – „Þú ert grínlaust fljótari að panta þér poka af dópi en pizzu“
Lestu einnig: Minningarsjóður Einars Darra gefur út forvarnarmyndband – „Maður getur ekki ímyndað sér framtíðina án hans“
Lestu einnig: Minningarsjóður Einars Darra gefur út forvarnarmyndband – „Það er aukning í andlátum ungs fólks“
Lestu einnig: Minningarsjóður Einars Darra gefur út forvarnarmyndband – „Hann sagði mér að sonur minn væri dáinn“