

Neymar og félagar í brasilíska landsliðinu eru úr leik á HM í Rússlandi eftir tap gegn Belgíu í gær.
Belgía hafði betur með tveimur mörkum gegn einu í fjörugum leik og mætir liðið Frakklandi í næstu umferð.
Neymar átti ekki sitt besta mót með Brössum og var oft ásakaður um að henda sér niður alltof auðveldlega í leikjum.
Neymar eyddi miklum tíma í grasinu á HM og reyndi oft að blekkja dómarana í leikjum Brasilíu.
Skondið myndband var birt í dag þar sem má sjá frá æfingu krakka í fótbolta en óvíst er hvaðan myndbandið kemur.
Þjálfarinn öskrar ‘Neymar’ og allir krakkarnir henda sér þá í jörðina og byrja að rúlla sér í grasinu.
Þetta má sjá hér.
Still funny. Neymar name is tarnished#WorldCup #RUSCRO
— Gitau ?? (@ItsGitau_) 7 July 2018