

Lið Úrúgvæ og Brasilíu eru úr leik á heimsmeistaramótinu í Rússlandi eftir leiki í 8-liða úrslitum keppninnar í gær.
Úrúgvæ mætti Frakklandi í fyrri leik dagsins í gær en þurfti að sætta sig við 2-0 tap þar sem Frakkar voru sannfærandi.
Í síðari leik dagsins áttust við Brasilía og Belgía en í þeim leik höfðu Belgar betur 2-1 og mæta Frakklandi í undanúrslitum.
Í dag mætast svo Svíþjóð og England klukkan 14:00 og svo síðar í kvöld fer fram viðureign Rússlands og Króatíu.
Það er því óhætt að segja að Evrópa sé búinn að sigra HM en aðeins Evrópuþjóðir eru eftir í keppninni.
Það var búist við miklu af liðum á borð við Brasilíu og Argentínu en þau lið hafa oft átt betri mót.