fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fókus

Fékk óvænt risaurriða í Úlfljótsvatni

Hrannar Pétursson veiddi stærsta fisk sem hann hefur veitt í gallabuxum á litla stöng

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 9. ágúst 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég fór nú bara út að vatni til að veiða einhverja smátitti fyrir krakkana til að draga inn en annað kom á daginn,“ segir Hrannar Pétursson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, sem lenti óvænt í baráttu við stóran urriða á bökkum Úlfljótsvatns um helgina.

Hrannar var þar staddur með fjölskyldunni og hafði stokkið niður að vatni með litla veiðistöng, fjarka eins og veiðimenn kalla þær, og öfugan Peacock með kúluhaus á línunni. Eftir að hann kastaði út hljóp heldur betur á snærið hjá honum og við tók barátta veiðimannsins við urriðann stóra í drykklanga stund.

„Ég gerði nú tilraun til að rétta krökkunum stöngina þegar hann var fyrst búinn að taka en þau réðu ekki við það enda fór hann um vatnið eins og tundurskeyti,“ segir Hrannar. Eftir um 20 mínútna baráttu við fiskinn stóra með litlu stönginni hafðist loks sigur.

„Þetta var kannski ekki stærsti fiskur í heimi en hann var þó reffilegur, 82 sentimetrar,“ segir Hrannar um urriðann væna og viðurkennir léttur í bragði að þetta sér stærsti fiskur sem hann hafi veitt í gallabuxum. Hrannar, sem hefur mjög gaman af veiði, hefur þó að eigin sögn landað þeim stærri um ævina. Hinir ungu áhorfendur vildu einhverjir ólmir fá urriðann á grillið um kvöldið á meðan dóttir hans var með aðrar hugmyndir.

„Hún hefur mjög lengi beðið um gæludýr og sá þarna tækifæri og vildi fá hann í búr,“ segir Hrannar og hlær.
Úr varð hins vegar að Hrannar sýndi þessum glæsilega urriða miskunn, þakkaði honum fyrir átökin og sleppti honum aftur í vatnið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi
Fókus
Fyrir 6 dögum

Einstakur og fallegur Laufeyjar Múmínbolli fáanlegur

Einstakur og fallegur Laufeyjar Múmínbolli fáanlegur
Fókus
Fyrir 1 viku

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma
Fókus
Fyrir 1 viku

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?
Fókus
Fyrir 1 viku

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu