fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026

Sjáðu Slayer taka víkingaklappið: Rokkstjörnur sýndu íslenska landsliðinu stuðning

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 26. júní 2018 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hápunktur Secret Solstice hátíðarinnar var án nokkurs vafa þegar þungarokksrisarnir Slayer stigu á stóra sviðið, laugardaginn 23. júní. Slayer hafa plægt málmakurinn í 37 ár og ákváðu nýverið að setjast í helgan stein. Þess vegna fengu holdvotir Solstice gestir að sjá einstaklega flott kveðjuprógramm.

 

Allur ferillinn

Rokk var mottóið á laugardeginum á Secret Solstice. Íslensku sveitirnar Agent Fresco og HAM kynntu vel í mannskapnum og svo kanadíska tvíeykið Death From Above. Grátt var yfir öllu og blautt, líkt og undanfarna tvo mánuði, en eftirvænting í andlitum gamalla rokkhunda sem birtust á svæðinu hver af öðrum. Leðurjakkar, bætt gallavesti, alskegg og síðir lubbar voru alls ráðandi.

Eftir að fáninn var reistur upp í rjáfur, vígalegu trommusettinu komið fyrir og búið að prófa um það bil fimmtíu skræpótta gítara stigu söngvarinn Tom Araya og félagar á sviðið og opnuðu með Repentless af nýjustu plötunni. Eitthvað fór nú úrskeiðis varðandi hljóðið en því var kippt í liðinn fyrir næsta lag, gamalkunna slagarann Blood Red.

Prógram kvöldsins var voldugt svo vægt sé í árina tekið. Hvorki var einblínt á gullaldarskeið hljómsveitarinnar á níunda áratugnum né nýrra efni heldur var drepið niður á flestum stöðum ferilsins í nítján lögum.

Hent í eitt víkingaklapp

Frammistaða sveitarinnar var nær óaðfinnanleg ef undan er skilinn hiksti Tom Araya í upphafi Mandatory Suicide þar sem hann virtist ruglast í byrjun lagsins. En Araya henti sjálfur gaman að því enda í mjög afslöppuðu og góðu skapi. Hann talaði hlýlega til áhorfenda og það fór smá kjánahrollur um gömlu íslensku rokkarana þegar hljómsveitin henti í eitt gott víkingaklapp. Flestir fyrirgáfu það hins vegar þar sem gamall draumur margra var að rætast og klappið gert til að sýna íslenska landsliðinu stuðning.

Flestir biðu eftir að heyra þekktustu lögin frá níunda áratugnum en besta frammistaðan kom hins vegar í tveimur nýrri lögum sem bæði eru mjög umdeild vegna trúarlegra texta, Disciple og Jihad. Slayer tónleikar eru ekki staður fyrir viðkvæmni og það var einstaklega hressandi að heyra allan dalinn blóðöskra: GOD HATES US ALL!!!

Í uppklappinu var svo komið að því að uppfylla skyldurnar. South of Heaven, Angel of Death og Raining Blood sem hefur skriðþunga á pari við meðalstórt snjóflóð.

Araya þakkaði fyrir sig og eftir sátu eftir sælir miðaldra aðdáendur, með suð í heyra, vöðvabólgu og dágóðan hausverk eftir allt skakið. Það var heiður að fá að upplifa þetta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 klukkutímum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Ætla að kortleggja jarðvarma á Grænlandi

Ætla að kortleggja jarðvarma á Grænlandi
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Jóhann hvetur þá til að fara ekki á taugum

Jóhann hvetur þá til að fara ekki á taugum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Kompany gefur grænt ljós á kaupin á enska landsliðsmanninum

Kompany gefur grænt ljós á kaupin á enska landsliðsmanninum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þessa hluta af kjúklingum á ekki að borða

Þessa hluta af kjúklingum á ekki að borða