fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Guðni flaggaði í tilefni dagsins: Klæddist treyju íslenska landsliðsins

Verður settur í embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn í dag

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 1. ágúst 2016 11:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Th. Jóhannesson verður settur í embætti forseta Íslands í dag. Hann flaggaði í tilefni dagsins við heimili sitt á Seltjarnarnesi en brátt mun Guðni flytjast á Bessastaði ásamt fjölskyldu sinni.

Eliza Reid, eiginkona Guðna, birti meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sinni þar sem hún sagði: „Í tilefni dagsins. Spennandi tímar framundan!,“ en fyrir neðan má sjá Guðna við flaggstöngina, klæddur í treyju íslenska fótboltalandsliðsins sem gerði það gott á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar.

Guðni var kjörinn forseti með nokkrum yfirburðum þann 25. júní síðastliðinn en hann tekur við embættinu af Ólafi Ragnari Grímssyni sem lét af embætti á miðnætti.

Athöfn vegna embættistöku Guðna fer fram í Dómkirkjunni og Alþingishúsinu og hefst hún klukkan 15.30 í dag. Ríkisútvarpið verður með beina útvarpssendingu frá athöfninni í Dómkirkjunni og beina sjónvarpsútsendingu frá athöfninni í þinginu frá klukkan 15.50. Þá verður sérstökum skjá komið upp svo þeir sem staddir verða á Austurvelli geti fylgst með því sem fer fram.

Almenningur er boðinn velkominn á Austurvöll til að fylgjast með athöfninni og fagna nýjum forseta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short