fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fókus

„Nei, það er hvorki sjúkt né vitskert“

Umfjöllun um samkynhneigða fyrr á árum – Umræðan tekið stakkaskiptum

Kolbrún Bergþórsdóttir
Laugardaginn 6. ágúst 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú um helgina eru Hinsegin dagar haldnir hátíðlegir, en markmið þeirrar hátíðar er öðrum þræði að fagna þeim mikla árangri sem náðst hefur í réttindabaráttu samkynhneigðra. Lengi lágu málefni þessa hóps að mestu í þagnargildi og sárasjaldan bar á opinberri umfjöllun um það. Og þegar samkynhneigð bar á góma var það oftar en ekki með mjög meiðandi hætti. Rétt er að geta þess að orðið samkynhneigð er ungt í málinu og lengst af var talað um „kynvillu“ sem nú hefur blessunarlega verið aflagt. Hér verða nokkur dæmi tekin um umfjöllun um samkynhneigð á fyrri áratugum.

Fáviska eða illmennska?

Á baksíðu Tímans mátti lesa sumardaginn fyrsta 1952: „Íslenskur kynvillingur að verki með negra“. Í fréttinni sagði að maður nokkur hefði fengið svertingja til fylgilags sem verið hafði á skipi í Reykjavíkurhöfn. Lögreglan hefði staðið mennina „að verki“ í bragga í úthverfi og tekið þá höndum. Síðan sagði orðrétt: „Þessi atburður og fleiri af ekki óáþekkum toga spunnir benda til þess, að býsna ískyggilegir hlutir séu að gerast á meðal okkar, og þess vegna telur blaðið ekki rétt að þetta viðbjóðslega mál liggi í þagnargildi. Það eru mörg tákn þess, að tími sé til kominn, að reynt verði að taka fast í taumana í siðferðilegum efnum, og á því er best, að almenningur átti sig.“

Vísir gagnrýndi þessa æsifréttamennsku harðlega tveimur dögum síðar. Blaðamaður Vísis kvað skrif Tímans um þetta efni sprottin af fávisku en ekki illmennsku og sagði svo: „Fréttaritarinn veit sýnilega ekki, að kynvilla er áskapaður eða áunninn sjúkleiki, sem veldur miklum truflunum á öllu tilfinningalífi sjúklinganna … Tíminn kórónar vansæmd sína með því að geta þess sérstaklega, að Íslendingurinn hafi lagt lag sitt við negra. Á tímum jafnréttis er erfitt að sjá rökrétt samhengi í þessari frásögn. Réttast er að Tíminn geri grein fyrir því, hvort kynvilla í sambandi við svartan mann sé á öðru sjúkleikastigi en ef mökin eru höfð við hvítan.“

Mynd: © DV / KRISTINN MAGNÚSSON

Listamenn og liðsforingjar

Í Mánudagsblaðinu sagði árið 1955 að „með borgarmenningu hefur kynvilla færst í aukana hér á landi, þótt lengi vel væri það í smáum stíl“. Höfundur greinarinnar taldi að undanfarin tíu til fimmtán ár hefði „hómósexualistum bæjarins … farið hraðfjölgandi“ og sagði svo: „Maður, sem er flestum þaulkunnugur hér í bæ, hefur fullyrt, að um 1940 hafi slíkir menn ekki verið fleiri en 10–12 í Reykjavík, en nú muni þeir 200. Ein höfuðorsök þessarar aukningar er eflaust upplausnin á stríðsárunum og eftir þau. Það er alkunnugt, að allmargir erlendir hermenn, ekki síst liðsforingjar, er hér dvöldust, voru með þessu marki brenndir, enda munu þeir reykvískir karlmenn ekki hafa verið margir, sem ekki voru einhverntíma ávarpaðir af þeim á götu og boðið fé í þessu skyni.“ Þá sagði höfundur að meðal listamanna bæjarins „geisaði kynvilla eins og eldur í sinu“ og vildi hann að lögreglan tæki upp eftirlit með þessum málum.

„Úrkynjun“ eða „normalt“

Í fréttinni sagði að málið væri viðbjóðslegt og mætti ekki liggja í þagnargildi.
Baksíða Tímans sumardaginn fyrsta 1952. Í fréttinni sagði að málið væri viðbjóðslegt og mætti ekki liggja í þagnargildi.

Blaðamaður Vikunnar spurði vegfarendur um viðhorf þeirra til samkynhneigðra árið 1970, en þar var enn notast við orðið „kynvilla“. Skoðanir fólks voru mjög skiptar. Ungur hárgreiðslunemi sagði: „Þetta er sjúkt fólk og mér finnst að það eigi að hjálpa því.“ Vélvirki nokkur sagði að um væri að ræða „brot á grundvallaratriðum kristinnar trúar“. Ung kona sagði samkynhneigð „ógeðslega“ og ungur hljóðfæraleikari kallaði hana „úrkynjun“.

Nokkrir viðmælendur af eldri kynslóðinni voru ekki eins dómharðir í svörum. Einar Markan söngvari sagði kynhneigðir eiga að vera einkamál manna. Í sama streng tók Þráinn Skarphéðinsson prentari. Colin Russel, ballettmeistari Þjóðleikhússins, svaraði spurningu Vikunnar svo: „Nútíma þjóðfélag viðurkennir þessa staðreynd, og mér finnst þetta allt í lagi. Nei, það er hvorki sjúkt né vitskert; í þess eigin augum er það fullkomlega normalt.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Undir áhrifum minnka hömlur“

Tilefni umfjöllunar Vikunnar var forsíðugrein ameríska tímaritsins Time um þetta mál. Þar var það krufið til mergjar „bæði sem þjóðfélagslegur vandi og persónulegt vandamál einstaklinga“. Vísað var til skýrslu Kinsey (frá árinu 1948), þar sem fram kom að 10 prósent karlmanna í Bandaríkjunum hefðu einhvern tímann á ævinni stundað kynlíf með öðrum karlmanni. Um þær mundir voru samkynhneigðir farnir að verða æ sýnilegri vestanhafs og greint var frá því að í Bandaríkjunum væru alls starfandi fimmtíu samtök þeirra. Þeir sérfræðingar sem blaðið hafði rætt við voru flestir þeirrar skoðunar að „nýr skilningur á eðli vandans væri nauðsynlegur, og ekki væri lengur hægt að útkljá hann með bannfæringu og refsingum“.

Samkynhneigð var til umræðu í Vikunni áratug síðar. Þar kvað við nokkuð annan tón þó svo að enn væri notað hugtakið „kynvilla“ og aftur vitnað til skýrslu Kinsey. Greinarhöfundur sagði svo: „Hræðslan við kynvillu er útbreidd í okkar menningu … Flest fólk reynir einnig að komast hjá því að hafa mikla líkamlega snertingu við fólk af sama kyni, því það er oft hrætt um að verða „misskilið“. Þetta á sérstaklega við þegar það er ekki undir áhrifum áfengis. En undir áhrifum minnka hömlur gjarnan á mönnum á þessu sviði, og líkamleg snerting við sama kyn getur aukist.“

Greinarhöfundur tók fram að orðið „kynvilla“ væri mjög neikvætt og háð neikvæðu gildismati og sagði svo: „Fræðsla um þessi mál … getur komið í veg fyrir að þeir sem teljast að ýmsu leyti afbrigðilegir kynferðislega verði fyrir óþarfa illkvittni og aðkasti.“

Mildari viðhorf heyrast

„Þá sagði höfundur að meðal listamanna bæjarins „geisaði kynvilla eins og eldur í sinu“ og vildi hann að lögreglan tæki upp eftirlit með þessum málum.“

Um þær mundir fór líka að bera á mildari viðhorfum til samkynhneigðar, sem enn um sinn var þó nefnd „kynvilla“. Í lesendabréfi í Dagblaðinu í apríl 1977 nefndi kona nokkur að fólk sem skæri sig úr á einhvern hátt ætti sama rétt á sér í þjóðfélaginu og aðrir og kvaðst vilja benda á þá staðreynd „að enginn er kynvilltur að eigin ósk. Kynvilla er sálrænt vandamál sem skapast í bernsku. Hinn kynvillti á enga sök þar. Fólk ætti að skammast sín fyrir að ráðast á og útiloka fólk frá samfélaginu, fyrir það eitt að vera ekki eins og „allir hinir““.

Frelsi til kynlífs

Mynd: © DV / Þormar

Þetta sama ár sagði frá því í frétt í Dagblaðinu að stofnuð hefðu verið í Reykjavík „samtök kynvilltra karla“. Í stofnályktun samtakanna sagði að „svokölluð „kynvilla“ væri hvorki sjúkdómur né siðspillt athæfi, heldur einn þáttur mannlegs eðlis, sem hvorki er gerlegt né endilega æskilegt að bæla niður“. Í ályktuninni var orðið „kynvilla“ innan gæsalappa. Forsvarsmaður samtakanna kvaðst vilja setja orðið á sömu hillu og trúvillu, en það orð væri nú fyrir löngu orðið ómerkt í kjölfar trúfrelsis. „Kynvilla“ færi brátt sömu leið af svipuðum ástæðum eða viðurkenndu frelsi til kynlífs.

Talsmaður samtakanna vísaði í Kinsey-skýrsluna sem áður var nefnd og sagði meirihluta karlmanna með þessar kenndir bæla þær niður alla ævi og skammast sín svo fyrir þær að þeir eyðilegðu meira og minna líf sitt. Mikið eðlilegra væri að menn fengju útrás fyrir hvatir sínar með öðrum mönnum sem hefðu sömu hvatir.

Talsmaðurinn sagði konur velkomnar í hópinn, en þess var getið í lok fréttarinnar að maðurinn vildi ekki láta nafns síns getið vegna tveggja kunningja hans sem hefðu greint opinberlega frá kynhneigð sinni og í kjölfarið orðið fyrir hvers kyns óþægindum og ónæði.

Af ofangreindu að dæma má öllum ljóst vera hvers konar bylting hefur orðið í hugarfari fólks til samkynhneigðra á allra síðustu áratugum og sannarlega fagnaðarefni að fjölbreytileiki mannlífsins fái notið sín.

Björn Jón Bragason – Birtist fyrst í DV blaðinu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 4 dögum

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga