fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Eyjan

Kynni mín af Humperdinck

Egill Helgason
Föstudaginn 2. mars 2012 15:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir nokkrum árum var ég staddur á hóteli á eyjunni Barbados.

Á hótelinu var roskinn maður sem naut nokkurrar athygli – það var komið fram við hann dálítið eins og hann væri stjarna.

Ekki stórstjarna þó – allt var þetta í hófi.

Svo varð úr að ég og þessi maður tókum tal saman við sundlaugina.

Þetta reyndist vera Engelbert Humperdinck.

Humperdinck var vinsæll söngvari þegar ég var að alast upp, en lítið hefur heyrst frá honum hin síðari ár. Þangað til nú að kemur á daginn að hann á að vera fulltrúi Bretlands í Evróvisjon söngvakeppninni.

75 ára gamall.

Ég rakst nokkrum sinnum á Humperdinck eftir þennan fyrsta fund okkar – þetta virkaði sem hinn alúðlegasti maður.

(Nafnið hans hefur reyndar alltaf vakið hjá mér spurn – þótt ég spyrði hann ekki út í það. Engelbert Humperdinck var þýskur óperuhöfundur sem var uppi frá 1854-1921. en hinn breski Humperdinck heitir í rauninni Arnold Dorsey.)

Engelbert Humperdinck á yngri árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan