fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Eyjan

Brynjar baunar á verkalýðshreyfinguna og Gunnar Smára

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 14. febrúar 2018 16:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, virðist ekki hrifinn af þeirri verkalýðsvofu sem nú gengur ljósum logum um landið, í formi Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, Sólveigar Önnu Jónsdóttur formannsframbjóðanda Eflingar og Gunnars Smára Egilssonar, stofnanda Sósíalistaflokks Íslands. Brynjar nafngreinir að vísu engan í færslu sinni, en ljóst er við hverja er átt.

Í færslu sinni á Facebook skrifar Brynjar:

„Í öllum frjálsum ríkjum eru launþegahreyfingar afar mikilvægar. Nauðsynlegt er að þar sé í forsvari ábyrgt fólk, sem skilur að forsenda bættra kjara sé öflugt og samkeppnishæft atvinnulíf. Nú um stundir er að gera sig gildandi í þessum hreyfingum fólk sem kannast ekkert við fordæmalausa kaupmáttaraukningu almennings og telur að stöðugleiki gagnist bara auðvaldinu. Er nú verið að dusta rykið af gamaldags verkalýðspólitík, sem stóð í vegi raunverulegra kjarabóta og framfara áratugum saman.“

Þá segir Brynjar um Gunnar Smára:

„Það yljar gömlum kaldastríðsmanni um hjartarætur að heyra að nýju þessi gömlu slagorð um arðrán og auðvaldið. Sérstaklega þegar þau koma frá nýjum foringja sósíalista sem hreyfði sig ekki spönn frá rassi fyrir nokkrum árum síðan nema í einkaþotu. Ég skil að sannfærðir sósíalistar hafi engan áhuga á stöðugleika því þá er auðvitað enginn jarðvegur fyrir byltinguna.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Missir Sjálfstæðisflokksins

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Missir Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Viðreisn í lykilstöðu samkvæmt nýrri könnun

Orðið á götunni: Viðreisn í lykilstöðu samkvæmt nýrri könnun
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórdís kölluð svikari – „Það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki“

Þórdís kölluð svikari – „Það sem áður var aðalsmerki orðið að svikamerki“