fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Sigurður Ingi fundaði með forseta sænska þingsins

Trausti Salvar Kristjánsson
Miðvikudaginn 7. febrúar 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Ingi Jóhannsson fræddi gestina um íslensk sveitarstjórnar- og byggðamál. Á móti honum situr forseti sænska þingsins, Urban Ahlin.

Forseti sænska þjóðþingsins, Urban Ahlin, heimsótti nýverið Sigurð Inga Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ásamt fylgdarliði en hann var hérlendis í opinberri heimsókn ásamt fjórum þingmönnum. Ræddi hann við ráðherra og nánustu samstarfsmenn í ráðuneytinu.

Sigurður Ingi bauð gestina velkomna í ráðuneytið og greindi í upphafi frá helstu verkefnum ráðuneytisins í sveitarstjórnar- og byggðamálum. Sagði hann meðal annars að byggðamálin sem hefðu nýverið verið flutt í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, væru sérstakt áhugamál sitt og meðal annars ástæða þess að hann hafði áhuga á að taka að sér embætti samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Samræmd stefna í byggðamálum væri mikilvæg fyrir fámennar byggðir og uppbyggingu þeirra og sagði byggðaáætlun nú í smíðum. Þar inni væri að finna ýmsar byggðaaðgerðir og sérstaklega verði skoðaðir hvatar til að styrkja hinar dreifðu byggðir landsins þar sem notast verður við þau kerfi sem þegar eru til staðar, svo sem námslánakerfið. Hann sagði ríkisstjórnina meðvitaða um byggðamál og nú væri í undirbúningi gerð þjónustukorts sveitarfélaga og hins opinbera enda mikilvægt að allir landsmenn gætu gengið að sams konar þjónustu óháð búsetu.

Einnig ræddi Sigurður Ingi um fjölda sveitarfélaga á Íslandi og eflingu þeirra og nefndi sem dæmi að íbúafjöldi sveitarfélaga væri mjög mismikill, allt frá um 50 í þeim fámennustu uppí 130 þúsund. Erfitt væri að flytja fleiri verkefni frá ríki til sveitarfélaga meðan mörg þeirra væru fámenn.

Í framhaldinu voru umræður og skiptust menn á upplýsingum og fróðleik um helstu verkefni og áskoranir sem sneru að yfirvöldum á þessum málefnasviðum. Sænska sendinefndin átti í Íslandsheimsókninni viðræður við forseta Alþingis, utanríkismálanefnd Alþingis,  forsætisráðherra og forseta Íslands. Einnig heimsótti hópurinn Seðlabankann og sveitarstjórnir og fyrirtæki á Vesturlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki