fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Sjáðu Will Smith og James Corden í fyrsta þætti af „Carpool Karaoke: The Series“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 9. ágúst 2017 10:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

James Corden er með spjallþáttinn The Late Late Show With James Corden og er duglegur að fá til sín hina ýmsu gesti. Bleikt fjallar oft um Carpool Karaoke en það er gríðarlega vinsæll þáttaliður í The Late Late Show og fær James stjörnur eins og Lady Gaga og Harry Styles til að koma á rúntinn með sér og syngja nokkur vel valin lög í leiðinni. Nú er búið að taka carpool karaoke á allt annað stig með þáttaröðinni Carpool Karaoke: The Series. Fyrsti þátturinn var frumsýndur í gærkvöldi á Apple Music og fær maður að sjá fyrstu sex mínúturnar af þættinum á YouTube. Enginn annar en stórleikarinn og rapparinn Will Smith er í fyrsta þættinum og þeir byrja bílferðina að sjálfsögðu á laginu „Gettin‘ Jiggy Wit It.“

James Corden og Will Smith spjalla meðal annars um hvort Will hefur einhvern tíman fengið boð um að leika Barack Obama fyrrum Bandaríkjaforseta.

Ég talaði við Barack um það. Hann sagðist vera öruggur með að ég væri með „eyrun“ til að leika hlutverkið,

sagði Will Smith. Carpool Karaoke: The Series er byggð á gríðarlega vinsælum þáttalið í The Late Late Show með James Corden. Samkvæmt fréttatilkynningu lofar netþátturinn að „para saman bestu stjörnurnar á bak við stýrið og hafa gaman yfir uppáhalds lagalistunum þeirra.“

Meðal þeirra stjarna sem munu koma fram í þessari þáttaröð eru LeBron James, Ariana Grande, Miley Cyrus, Shakira og Gwyneth Paltrow. Það koma tveir nýir þættir í hverri viku. Í næstu viku verða Alicia Keys, John Legend, Metallica og Billy Eichner í þættinum.

Skjáskot/YouTube
Skjáskot/YouTube
Skjáskot/YouTube

Horfðu á stikluna fyrir þættina hér fyrir neðan.

Þú getur horft á þættina á Apple Music.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun

Ingibjörg kom að syni sínum meðvitundarlausum eftir TikTok-áskorun
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Vikan á Instagram: „Var með smá fordóma fyrst sem ég skammast mín fyrir núna“

Vikan á Instagram: „Var með smá fordóma fyrst sem ég skammast mín fyrir núna“
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Segist hafa leyst ráðgátuna um Bermúdaþríhyrninginn

Segist hafa leyst ráðgátuna um Bermúdaþríhyrninginn
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.