fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Segir að fréttastofan standi í ljósum logum – „Ég hef ekki séð annað eins á mínum 37 ára ferli“

Pressan
Mánudaginn 8. júní 2026 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsmaðurinn Scott Pelley var á dögunum rekinn frá sjónvarpsstöðinni CBS og hefur frá því farið mikinn um hvaða breytingar áttu sér stað á fréttastofunni eftir að íhaldskonan Bari Weiss var ráðin þangað sem ritstjóri. Pelley segir að Weiss hafi meðal annars haft afskipti af fréttaflutningi af aðgerðum tolla- og innflytjendaeftirlitsins, ICE, eftir að kona í Minneapolis var skotin til bana af fulltrúa ICE. Mikil mótmæli brutust út í kjölfarið en Weiss mun hafa krafist þess að fréttamenn klipptu til efni svo mótmælendur virkuðu ofbeldisfyllri en þeir voru og eins áttu fréttamenn að lýsa atvikum svo að konan, Renee Good, hefði verið að aka í átt að fulltrúa ICE þegar hún var skotin til bana.

Ofbeldisfyllri mótmælendur

Pelley sagði í samtali við The New York Times (NYT): „Tvennt af því sem kom fram í tölvupóstinum: Getum við látið mótmælendur virka ofbeldisfyllri? Ég tek fram að ég er að umorða þetta þar sem ég er ekki með beina tilvitnun, en svona var efninu lýst við mig. Hitt varðaði bifreið Renee Good: Þið þurfið að lýsa því svo að hún hafi ekið í átt að ICE-fulltrúanum.“

Þetta hafi Weiss fyrirskipað þrátt fyrir að myndbönd af morðinu hafi ekki stutt þá túlkun. Pelley segir að í myndbandinu megi sjá ICE-fulltrúann standa aðeins til hliðar við framhlið bílsins og að skýrlega megi sjá að dekkjum bifreiðarinnar hafi verið snúið eins langt og þau komast í burtu frá fulltrúanum. Þar með hafi Good ekki reynt að aka yfir fulltrúann heldur var hún að reyna að komast í burtu frá honum. „Samt skítur hann hana í höfuðið og drepur hana,“ sagði Pelley en hann telur að Weiss hafi viljað mála upp ranga mynd af atvikum í þágu Donalds Trump forseta.

Pelley tekur fram í viðtalinu að hann og hans teymi hafi þá þegar verið búnir að taka saman myndefni til að sýna að mótmælendur hafi gengið of langt, þeir hafi veist að lögreglu og almennt verið átakasæknir. Fréttin var tilbúin til að fara í loftið en fjórum tímum eftir skilafrestinn sendi Weiss áðurnefndan tölvupóst.

„Við höfðum lagt okkur fram frá upphafi til að sýna á hverju mótmælendur báru ábyrgð. Við vorum þegar búin að kemba myndbandasafnið í leit að þessum atvikum. Einhvern veginn var það samt ekki nóg fyrir frú Weiss. Myndbandið sýndi að lögreglumaðurinn stóð ekki fyrir framan bílinn og hún var ekki að keyra í áttina að honum, en það var það sem forsetinn hafði sagt um málið og þannig vildi hún að því yrði lýst.“

Greinilega slagsíða

Þrátt fyrir þetta ákvað Pelley að leggjast yfir myndböndin af atvikinu og sjá hvort það væri einhver leið að taka undir þessa túlkun Weiss og forsetans. Niðurstaðan var sú að Pelley neitaði að breyta fréttinni. Hann beið þess svo að vera skammaður daginn eftir útsendinguna en Weiss gerði engar athugasemdir. Pelley heldur að hún hafi ekki horft á þáttinn en hann telur ljóst að Weiss hafi reynt að hafa áhrif á hlutleysi miðilsins í þágu forsetans.

„Vogaskálunum var hallað í þágu útgáfu forsetans af atburðum, eitthvað sem mér fannst vera pólitísk afskipti af slíkri gráðu að ég hef ekki séð annað eins á mínum 37 ára ferli hjá CBS-fréttastofunni.“

Talsmaður CBS sagði í samtali við The New York Times að umræddur tölvupóstur hafi verið eðlilegur. Þar hafi Weiss gert fjórar athugasemdir við fyrirhugaðan fréttaflutning og hafi þær allar átt rétt á sér. Weiss hafi verið að tryggja að fréttaflutningur væri hlutlaus og sanngjarn en CBS neitar að tölvupósturinn bendi til pólitískrar slagsíðu. „Athugasemdir hennar enduðu ekki allar í lokaútgáfu fréttarinnar,“ segir í yfirlýsingunni en því er eins neitað að Weiss hafi reynt að hafa pólitísk áhrif á umfjöllun fréttastofunnar.

Blaðamaður NYT spurði hvort Weiss hefði mögulega verið að reyna að tryggja hlutlægni en Pelley segir að fréttin hafi verið hlutlaus og hafi þegar hlotið náð í augum fréttastjóra og nánustu undirmanna Weiss. Gerir Pelley eins athugasemd við að athugasemdir Weiss hafi borist eftir að skilafrestur fréttarinnar var liðinn.

Pelley hefur áður sakað Weiss um að vera viljandi að gera út af við fréttaskýringaþáttinn 60 Minutes, en Pelley var sagt upp störfum í kjölfar þeirrar fullyrðingar. Hann hefur eins lýst yfir þeirri skoðun sinni að Weiss skorti reynsluna til að geta stýrt jafn stórum og virtum fréttamiðli og CBS. Hann hafi engu að síður ákveðið að gefa henni tækifæri þegar hún tók við og leyfa henni að njóta vafans. Það gerir hann ekki lengur en Pelley telur að eigendur fréttastofunnar þurfi að losa sig við Weiss og það sem fyrst.

„Guð minn góður, já. Sko, hún er fín kona og Free Press-samtökin sem hún stofnaði hafa notið mikillar velgengni. En hún á ekkert erindi í sjónvarp. Þetta er eins og ef einhver myndi ganga upp að mér og segja: Hér er 747-flugvél með 400 farþega um borð og þú þarft að fljúga henni til Parísar. Ég þyrfti að afþakka því ég hef ekki hugmynd um hvernig ég gæti gert það. Og það hefði verið svo miklu betra ef Bari Weiss hefði verið boðin þessi staða og sagt: Ó, nei, þetta er ekki fyrir mig, ég kann þetta ekki.“

Pelley segir að CBS standi nú í ljósum logum og að eigendur þurfi að fá fullorðið fólk til að taka þar til. Nú séu virtir blaðamenn að stíga fram og lýsa því að það sé komin pólitísk slagsíða í fréttaflutning og að skipinu sé siglt af reynslulausu fólki sem viti ekki hvað það er að gera.

Uppfært: Blaðamanni varð á í messunni og ritaði nafn virta fjölmiðlamannsins vitlaust, þ.e. skrifaði Palley í stað Pelley. Blaðamaður á sér engar málsbætur og hefur fréttin verið leiðrétt. 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sífellt fleiri Danir láta brenna lík sitt í pappaöskju

Sífellt fleiri Danir láta brenna lík sitt í pappaöskju
Pressan
Í gær

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Er þér illt í maganum? – Stress gæti verið orsökin

Er þér illt í maganum? – Stress gæti verið orsökin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Pútín hefur í hótunum – Reiðubúinn til að ráðast á annað land

Pútín hefur í hótunum – Reiðubúinn til að ráðast á annað land