
Donald Trump Bandaríkjaforseti rauk úr úr miðju sjónvarpsviðtali við NBC í þættinum Meet the Press, vegna þess að hann var óánægður með spurningar blaðamannsins Kristen Welker.
Metro greinir frá en meðfylgjandi er myndband af uppákomunni.
Trump og sjónvarpskonuna greindi á um margt, meðal annars kosningar í Kaliforníu og Íransstríðið. Trump staðhæfði að rangt hefði verið haft við í nýlegum kosningum í Kaliforníu en þegar Welker benti honum á að hann hefði ekki lagt fram nein gögn því til sönnunar varð Trump reiður og sagði að NBC-stöðin væri rotin og spillt.
Áður hafði Trump sagt um Íransstríðið að hann hefið eyðilagt sjóher og flugher Írans en Walker hjá NBC lýsti efasemdum um það.
Hún minnti líka Trump á fyrirheit hans um að byrja ekki nein ný stríð. Þá sagði hann: „Ég lofaði ekki að það yrði nein ný stríð. Hvers vegna heldurðu að ég hafi byggt upp sterkasta her í heimi? Ég byggði upp herinn okkar.“
Loks var Trump nóg boðið og hann sagði: „Veistu hvað? Land getur aldrei orðið stórfenglegt með óheiðarlega fjölmiða. Förum!“
Hann reif síðan af sér hljóðnemann og stormaði út úr hljóðverinu. Walker reyndi hvað hún gat til að telja honum hughvarf og benti forsetanum á að hún hefði ferðast langa leið til að ræða við hann. En Trump var ekki haggað og sagði:
„Thank you darling, have a good time“