
Í færslunni lýsir Gupta ákveðnum einkennum sem hann hefur séð hjá Trump á síðustu vikum og mánuðum.
Í færslu sinni á X, skrifaði hann: „Óútreiknanlegur. Getur ekki lokið við setningar. Oft ringlaður. Órökrétt hugsun. Á í vandræðum með að finna orð. Þróast og versnar stig af stigi. Forsetinn sýnir öll merki elliglapa.“
Hann birti færsluna eftir að fólk lýsti áhyggjum af heilsu Trump, meðal annars vegna færslu á Truth Social, sem er samfélagsmiðilli í eigu Trump, þar sem hann notaði sterk orð og skrifaði síðan „lof sé Allah“. The Independent skýrir frá þessu.
En það voru ekki allir sammála þessum skrifum Gupta. Einn svaraði: „Þegar þetta kemur frá manni sem sagði Biden „vera í frábæru formi“, þá er þetta merkingarlaust.“
Annar skrifaði að áróðursmaskína vinstrimanna sé orðinn örvæntingarfull og að fólk trúi ekki lengur því sem kemur úr þeirri átt.
Enn einn lýsti yfir áhyggjum og sagði að Trump gæti verið ógn við heimsfriðinn og efnahag heimsins, sérstaklega af því að hann hefur aðgang að kjarnorkuvopnum.