
Kókaínið fannst í skipinu Arconian þegar það lá fyrir festum við strendur Afríku. Í lest skipsins voru 30 tonn af kókaíni auk skotvopna og skotfæra.
Skipið var fært til hafnar í Las Palmas á Kanaríeyjum þar sem farminum var skipað í land.
Öll áhöfnin, 23 menn, er í haldi spænsku lögreglunnar.
Lögreglan telur að smyglararnir hafi ætlað að flytja kókaínið yfir í hraðbáta, þegar skipið væri komið nær spænska meginlandinu, og flytja það þannig í land.
Arconian sigldi undir fána Kómoreyja og var á leið frá Sierra Leone til Líbíu.
Evrópsk yfirvöld hafa aldrei áður lagt hald á svo mikið magn kókaíns í einu. Gamla metið var frá 2024 en þá fann þýska lögreglan 25 tonn á hafnarsvæðinu í Hamborg. Efnið var þá falið í fjölda ávaxtagáma sem voru að koma frá Suður-Ameríku.