
Þetta sagði Christine Berg, 26 ára, í upphafi myndbands sem hún birti á samfélagsmiðlinum TikTok.
„Þetta snýst um „bsss“ (hljóðið í titrara, innsk. blaðamanns). Þegar maður hefur einu sinni byrjað að nota hann, hafa fleiri uppgötvað að þetta virkar ekki án hans?“ segir hún einnig í myndbandinu.
„Ég sé næstum eftir að hafa byrjað,“ sagði hún í samtali við TV2.
Hún var tvítug þegar hún prófaði titrara í fyrsta sinn. Síðan varð hann fastur fylgdarsveinn hennar.
„Þetta er svolítið „no going back“ af því að þetta er svo góð tilfinning,“ sagði hún.
Hún var vön að fá fullnægingar bæði með sjálfsfróun og með bólfélögum en nú breyttist eitthvað.
„Það er erfitt að finna eitthvað í stað tækisins því það er svo nákvæmt. Það er erfitt að gera það sama með fingri,“ sagði hún.
Fljótlega eftir að hún notaði titrara í fyrsta sinn, hætti hún að geta fengið fullnægingu án hans. Hún notar titrara í næstum hvert sinn sem hún stundar kynlíf.
„Ég get notið þess en ég fæ ekki fullnægingu án hans,“ sagði hún.