
Þetta sagði hann í samtali við þýska miðilinn Die Welt. Hann dró upp dapra mynd af stöðu mála hjá varnarbandalaginu og sagði að einn maður beri ábyrgð á stöðu mála.
„Það sem við sjáum núna, er upplausn NATÓ, og það er hættulegt,“ sagði hann.
Það er Donald Trump sem Rasmussen telur að beri ábyrgð á þeim brestum sem eru komnir í NATÓ.
Trump hefur ítrekað hellt sér fyrir evrópska bandamenn Bandaríkjanna í NATÓ. Sérstaklega vegna þess að þeir hafa ekki viljað koma Bandaríkjunum til aðstoðar í stríði þeirra gegn Íran og við að halda Hormússundi opnu.
Rasmussen benti á að Trump hafi skapað svo mikinn vafa um hvort Bandaríkin muni virða NATÓ-sáttmálann og koma Evrópu til aðstoðar ef ráðist verður á evrópskt aðildarríki NATÓ. Hann sagði að aðeins sé hægt að komast að einni niðurstöðu út frá ummælum Trump og hún sé að Evrópa verði að standa á eigin fótum og sjá um varnir álfunnar.
Hann sagðist telja að nú sé tími til kominn að Evrópuríkin gerir heri sína óháða Bandaríkjunum. Hann lagði því til að nýtt evrópskt varnarbandalag verði stofna, án aðkomu Bandaríkjanna. Aðildarríki nýja bandalagsins muni skuldbinda sig til að verja minnst fimm prósentum af þjóðarframleiðslu sinni til varnarmála og þess utan skuldbinda sig til að koma öðrum aðildarríkjum til varnar ef á þau verður ráðist. Ef ríki uppfylla ekki þessi skilyrði á að vera hægt að vísa þeim úr bandalaginu sagði Rasmussen.
Hann sagðist telja að stórveldin Þýskaland, Frakkland, Bretland og Ítalía séu upplagðir leiðtogar í þessu samhengi og að hann telji að taka eigi Úkraínu inn í þetta nýja bandalag sem fullgildan meðlim.
Hann viðurkenndi að stærsta öryggistrygging Evrópu yrði áfram að vera „kjarnorkuregnhlíf Bandaríkjanna“ en að Evrópa verði sjálf að sjá um „hefðbundnar varnir“ sínar.