
Ríkisfréttastofan Xinhua skýrði nýlega frá því að tveir fyrrum varnarmálaráðherrar hafi verið dæmdir til dauða.
Dómar beggja eru skilorðsbundnir til tveggja ára en það þýðir að sögn Politico yfirleitt að dómnum sé breytt í ævilangt fangelsi að þessum tveimur árum loknum.
Ráðherrarnir fyrrverandi voru einnig sviptir réttinum til þátttöku í stjórnmálum og allar eigur þeirra voru gerðar upptækar í ríkissjóð.
Wei Fenghe, sem var varnarmálaráðherra frá 2018 til 2023, og eftirmaður hans Li Shangfu, sem var varnarmálaráðherra í sjö mánuði 2023, voru báðir fundnir sekir um spillingu með því að hafa þegið mútur.
Li Shangfu var talinn náinn bandamaður Xi Jinping í kommúnistaflokknum þar til hann hvarf skyndilega þegar hann hafði gegnt embætti varnarmálaráðherra í sjö mánuði. Margir aðrir embættismenn hurfu á sama tíma.
Töluvert hefur gengið á í kínverska valdakerfinu það sem af er ári og hefur Xi Jinpeng ekki sýnt neina miskunn við hreinsanir á toppnum í valdakerfinu og í hernum.
Fólk hefur verið handtekið og horfið og sakað um spillingu en Xi hefur lagt mikla áherslu á að berjast gegn spillingu. Sérfræðingar hafa þó uppi efasemdir um að öll málin tengist spillingu, hugsanlega sé verið að hreinsa til vegna innri ágreinings og séu andstæðingar forsetans einfaldlega sakaðir um spillingu til að losna við þá.