

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.
Það er mikil spenna í fallbaráttunni fyrir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Tómas er stuðningsmaður West Ham og með sigri á Leeds og tapi Tottenham gegn Everton heldur liðið sér uppi.
Björn og Helgi eru stuðningsmenn Arsenal og vilja eðlilega að West Ham haldi sér frekar en Tottenham. „Ég ætla að halda með ykkur, ekki síst fyrir að hafa skaffað okkur Declan Rice,“ sagði Björn, en Arsenal keypti miðjumanninn á 105 milljónir punda árið 2023.
„Þið fenguð hann allt of ódýrt,“ grínaðist Tómas og Helgi tók í sama streng. „Allt of ódýrt, maður eiginlega skammast sín.“
Björn hrósaði Rice fyrir að standa undir verðmiðanum. „Maður sem er seldur á svona pening og stendur undir því, það eru ekki mörg dæmi um það.“
Nánar í spilaranum.