fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Þóra Kristín sér fyrir sér þetta samstarf í Reykjavík eftir kosningar – Ekki eru allir sannfærðir

Ritstjórn DV
Föstudaginn 15. maí 2026 07:57

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, hin þrautreynda fjölmiðlakona og upplýsingafulltrúi, segir að ýmislegt bendi til þess að tveir ákveðnir flokkar muni vinna saman í Reykjavík eftir kosningarnar um helgina.

„Eftir því sem kosningabaráttunni vindur fram finnst mér æ líklegra að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn vinni saman eftir kosningar í Reykjavík,” segir Þóra í færslu á Facebook og bætir við að ekki sé ólíklegt að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hafi haft þetta í huga þegar hún tefldi Pétri Marteinssyni fram sem oddvita.

„Þetta mun líka skera Hildi Björnsdóttur niður úr snörunni en hún hefur talað þvert um hug sér í samgöngumálum til að halda í svartasta íhaldið sem annars læðist yfir í Miðflokkinn. Saman munu þessar flokkar halda áfram með Borgarlínu. Þetta mun hinsvegar valda vinstri armi Samfylkingarinnar miklum vonbrigðum og harðasta hægrið mun rugga bátnum allsvakalega,“ segir Þóra Kristín en tekur svo fram að lokum að svo geti óvæntir hlutir gerst þegar búið er að telja upp úr kössunum.

Ekki eru allir sannfærðir um að Þóra Kristín reynist sannspá eins og sést í athugasemdum við færsluna.

„Það gerist ekki. En mætti kannski alveg prófa,“ segir Egill Helgason fjölmiðlamaður. Sigríður Arnardóttir, Sirrý, tekur í svipaðan streng. „Þetta finnst mér ekki líklegt.“

Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir að þessi kostur verði ekki fyrir valinu hjá Samfylkingunni nema allt verði komið í þrot.

„Mér þykir líklegt að Viðreisn verði lykilstöðu eftir kosningar. Ef henni líst ekki á samvinnu til hægri (sérstaklega Miðflokkinn) fer hún í meirihluta með Samfylkingu, Vinstrinu og Pírötum.“

Þá nefnir Guðjón að miðað við hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur kennt Samfylkingu um allt illt á undanförnum árum sé frekar ólíklegt að samkomulag náist á milli þessara tveggja flokka um meirihluta í borginni. „Svo má líka benda á að VG er sá flokkur til vinstri sem einkum hefur starfað með Sjfl á undanförnum árum.“

Færslu Þóru og fleiri athugasemdir má sjá hér að neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Tvær stúlkur sýknaðar af ákæru um líkamsárás eftir klúður lögreglu, ákæruvalds og dómara

Tvær stúlkur sýknaðar af ákæru um líkamsárás eftir klúður lögreglu, ákæruvalds og dómara
Fréttir
Í gær

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“