fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Hvetur Valtý til að fara í meiðyrðamál við sig því þá muni sannleikurinn í Geirfinnsmálinu koma fram

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 15. maí 2026 08:00

Jón Ármann Steinsson. Skjáskot Samstöðin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Ármann Steinsson, útgefandi bókarinnar „Leitin að Geirfinni“, heldur áfram að tjá ásakanir í garð Valtýs Sigurðssonar, fyrrverandi fulltrúa bæjarfógeta í Keflavík, um að Valtýr hafi vísvitandi afvegaleitt rannsókn Geirfinnsmálsins á sínum tíma.

Þessu hafa aðstandendur bókarinnar, auk Jóns, þau Sigurður Björgvin, höfundur bókarinnar, og systir hans, Soffía Sigurðardóttir, haldið fram leynt og ljóst.

Í nýju viðtali við Samstöðina staðhæfir Jón að Valtýr hafi afvegaleitt rannsóknina vegna náinna kynna sinna við bestu vinkonu eiginkonu Geirfinns, sem hann hafi eignast barn með í lausaleik. Hann hafi síðan fengið annan mann, nátengdar eiginkonu Geirfinns, til að gangast við barninu og giftast vinkonunni, en það hjónaband hafi aðeins varað í nokkra mánuði.

Lögreglan rannsakaði málið út frá þeirri tilgátu að Geirfinnur hefði horfið eftir að hafa farið til fundar við ókunnugan mann í Hafnarbúðinni í Keflavík þetta margumtalaða kvöld, 19. nóvember 1974. Stefnumótið hafi tengst spírasmygli og lögreglan vann síðan að rannsókninni út frá þeirri tilgátu, sem Jón segir hafa verið tilbúning Valtýs, til að leiða athyglina frá sannleikanum í málinu.

Margoft hefur verið fjallað hér í DV um niðurstöðu bókarinnar „Leitin að Geirfinni“ um dauða Geirfinns. Jón fer yfir það aftur í viðtalinu að Geirfinnur hafi látist á heimilinu sínu eftir að hann kom þar að eiginkonu sinni uppi í rúmi með elskhuga sínum. Með í för var maður sem hafði tekið Geirfinn upp í bíl eftir að hann kom úr sjoppu. Sá maður var tengdur eiginkonu Geirfinns fjölskylduböndum og er sá sem Jón segir vera þann sem hafi gengist við lausaleiksbarni Valtýs. Þessi maður á að hafa banað Geirfinni í átökum sem brutust út í kjölfar þess að Geirfinnur trylltist eftir að hafa séð elskhuga eiginkonu sinnar á heimilinu.

Sjá einnig: Fór ekki til fundar við mann í Hafnarbúðinni og „Leirfinnur“ hringdi ekki í hann

Jón segir að dauði Geirfinns hafi ekki verið morð að yfirlögðu ráði heldur manndráp af gáleysi. Samantekin ráð hafi hins vegar verið um að fela lík hans. Þar hafi bíll elskhuga eiginkonunnar komið að notum.

Hvetur til DNA-prófs og meiðyrðamáls

Valtýr hefur afgreitt kenningar og ásakanir aðstandenda bókarinnar „Leitin að Geirfinni“ sem gjörsamlega fráleitar. Jón hvetur hann og aðra viðkomandi aðila til að fara í DNA-próf til að komast að leið fram hið sanna með faðernið.

„Við bara leggjum til að fólk fari bara í DNA til þess að sanna að það sé rangt. Þá fellur allt okkar mál. Þá fellur bara helmingurinn, skulum við segja, af málflutningi okkar um að Valtýr hafi eitthvað haft með þetta að gera,“ segir Jón í viðtalinu við Samstöðina.

Sjá einnig: Segir lík Geirfinns hafa verið flutt í bíl Svanbergs

Tilraunir hans og félaga til að fá lögreglu til að opna rannsókn Geirfinnsmálsins á grundvelli gagna sem þau hafa lagt fram hafa verið árangurslausar. Hann nefnir aðra leið til að afhjúpa sannleikann í málinu, og á þar við mögulegt meiðyrðamál sem Valtýr gæti höfðað gegn honum:

„Það besta sem gæti gerst er að Valtýr hlustar á þetta prógramm og fer í mál við mig. Fyrir að segja þetta sem ég er að segja. Ég bara skora á hann að gera það. Vegna þess að þá hef ég rétt á að kalla vitni, þá hef ég rétt á að gera ýmislegt. Og þá verður þetta að blaðamáli, þá verða staðreyndirnar ljósar og við getum tekið þetta mál af dagskrá. Þetta mál er eins og tyggjó undir skósóla þjóðarinnar, þetta fer ekki í burtu, þetta er ár eftir ár alltaf að koma upp.“

Segir séra George hafa brotið kynferðislega gegn Sævari Ciesielski

Eins og alþjóð veit var Sævar Ciesielski á sínum tíma sakfelldur fyrir morð á Geirfinni en hann síðan hreinsaður af þeim sökum eftir andlát sitt.

Þeir Sævar og Jón voru æskuvinir og félagar í Landakotsskóla og sumarbúðunum Rifstúni, á árunum upp úr 1960. Jón lýsir því í viðtalinu hvernig hann varð óbeint vitni að því að séra Georg braut kynferðislega gegn Sævari í Rifstúni.

Jón segist ekki hafa verið í sambandi við Sævar á fullorðinsárum og eftir að ásakanir komu fram gegn honum hafi hann trúað því sem lögregla og dómskerfið báru á borð. Vegna þess hefur hann samviskubit gegn þessum æskuvini sínum og er meira knúinn en ella til þess að freista þess að afhjúpa sannleikann í málinu.

Átta þátta sjónvarpssería

Í viðtalinu kemur ennfremur fram að Jón vinnur að gerð leikinnar þáttaseríu um Geirfinnsmálið í samvinnu við erlenda aðila. Hann hefur skrifað megnið af handritinu en sögulokin eru óskrifuð þar sem þau eru óráðin, málinu er ekki lokið.

Viðtalið er í spilaranum hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Tvær stúlkur sýknaðar af ákæru um líkamsárás eftir klúður lögreglu, ákæruvalds og dómara

Tvær stúlkur sýknaðar af ákæru um líkamsárás eftir klúður lögreglu, ákæruvalds og dómara
Fréttir
Í gær

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“