

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært Írisi Helgu Jónatansdóttur, 38 ára, fyrir umsáturseinelti gegn þremur mönnum og aðstandendum þeirra. Íris Helga er einnig ákærð fyrir rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á morgun, ákæran er löng alls 17 blaðsíður og ákæruliðirnir eru rúmlega sextíu talsins.
Töluvert hefur verið fjallað um mál Írisar Helgu í fjölmiðlum síðustu misseri, en tveir karlmenn stigu fram undir nafni í viðtölum þar sem þeir lýstu reynslu sinni.
Síðast komst Íris Helga í fréttir í apríl þegar hún var handtekin eftir að hafa sent inn falska dánartilkynningu um í Morgunblaðið um annan af mönnunum framangreindu. Ákæran var gefin út 7. apríl, þremur dögum áður en Íris Helga var handtekin vegna dánartilkynningarinnar.
Umsáturseinelti gegn fyrsta manninum hófst árið 2022 og stóð yfir í tvö ár. Er Íris Helga meðal annars sökuð um að hafa komið heim til mannsins með krukku sem hún sagði að innihéldi fóstur sem hún hefði misst.
Íris Helga er einnig ákærð fyrir umsáturseinelti gagnvart sambýliskonu mannsins, syni hans og tengdaforeldrum. Meðal annars sendi Íris Helga þeim öllum fjölda skilaboða frá fjölda samfélagsmiðlareikninga. Á meðal hótana má nefna að Íris Helga hótaði að fremja skemmdarverk á bíl mannsins, eitra fyrir hundinum hans, kveikja í húsi konunnar og að þau fengju aldrei frið framar í lífinu. Í skilaboðum til sonar mannsins viðhafði hún niðrandi ummæli um föður hans og sagði að fylgst væri með honum og heimili hans. Íris Helga stofnaði Tinder-reikninga í nafni mannsins og sambýliskonu hans. Hún sakaði einnig manninn um barnaníð og kynferðisbrot á opinberum vettvangi og sambýliskonuna um innflutning fíkniefna.
Íris Helga útbjó miða þar sem hún sagði manninn áreita ungar konur og hafa mikið magn barnaníðsefnis í vörslum sínum. Deifði hún miðunum í póstlúgur og póstkassa í heimabæ fólksins. Auk þess hengdi hún upp miða í verslun Bónuss og sagði manninn vera að leita að börnum til að passa hundinn hans.
Karlmaður er sömuleiðis ákærður í málinu. Honum er gefið að sök að maka saur á hurðarhún heimilis og bifreiðar mannsins sem hér um ræðir og sambýliskonu hans.
Ákæran greinir frá því að umsáturseinelti gegn öðrum manni og dóttur hans hafi staðið yfir frá mars árið 2024 þar til í ágúst 2025. Hér er um að ræða Sölva Guðmundsson, sem steig fram opinberlega og greindi frá umsáturseineltinu og er hann sá sem Íris Helga sendi inn dánartilkynningu vegna núna í apríl. Ekki er ákært vegna dánartilkynningarinnar, þar sem ákæran var gefin út áður.
Dóttir mannsins er á unglingsaldri og er Íris Helga meðal annars sökuð um að hafa áreitt hana með ítrekuðum skilaboðum á samfélagsmiðlum, og sent tölvupóst til framhaldsskóla dótturinnar þar sem hún var ranglega sökuð um kynferðislega áreitni gegn öðrum nemendum skólans. Íris Helga er einnig sökuð um að hafa sent annan tölvupóst til skólans þar sem faðirinn var sakaður um að koma með fíkniefni á heimavist skólans. Einnig er Íris Helga sökuð um að hafa setið um feðginin á vinnustöðum þeirra.
Íris Helga er einnig sökuð um að hafa greint manninum ranglega frá því að hún væri ófrísk eftir hann og að hann fengi aldrei að hitta barnið. Einnig deildi hún þessum röngu upplýsingum ítrekað á samfélagsmiðlum og greindi dótturinni frá í skilaboðum. Íris Helga stofnaði síðan falskan reikning þar sem hún varaði við því að maðurinn væri barnaníðingur.
Umsáturseinelti Írisar Helgu gagnvart þriðja manninum og dóttur hans stóð yfir frá apríl 2024 til júlí 2025 samkvæmt ákærunni. Maðurinn er Garpur. I. Elísabetarson, sem steig fram í viðtali á Vísi í fyrra og greindi frá umsáturseineltinu. Á þeim tíma sem umsáturseineltið stóð yfir starfaði Íris Helga í grunnskóla og er hún sögð hafa greint ranglega frá því við samstarfsfólk sitt og nemendur að maðurinn væri kærasti hennar og dóttir hans stjúpdóttir hennar. Einnig sagði hún samkennara sínum að þrír drengir við skólann hefðu sent dóttur mannsins óviðeigandi myndir og var það mál skoðað innan skólans.
Einnig er Íris Helga sögð hafa sent vinnuveitanda mannsins tölvupóst þar sem hún hélt því fram að hann hefði brotið kynferðislega gegn dóttur hennar. Hún tilkynnti einnig manninn til barnaverndar og pantaði tíma hjá kærumóttöku lögreglu þar sem hún sagðist ætla að leggja fram kæru vegna nauðgunar. Síðar viðurkenndi hún að þessar ásakanir væru rangar og hún hefði sent beiðnina inn í hefndarskyni þar sem maðurinn hefði kært hana til lögreglu fyrir umsáturseinelti og ærumeiðingar.
Írisi Helgu er einnig gefið að sök að hafa útbúið fjölda reikninga á samfélagsmiðlum þar sem hún birti nöfn og myndir af feðginunum ásamt niðrandi og ósæmilegum ummælum og ýmsum ásökunum gagnvart manninum.
Í ákærunni er þess krafist að Íris Helga og hlutdeildarmaður hennar verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Samkvæmt almennum hegningarlögum varðar háttsemi sem þessi sektum eða fangelsi allt að 4 árum.
Skaða- og miskabótakröfur fyrir hönd þeirra sem Íris Helga er ákærð fyrir að brjóta á hljóða upp á alls 9,25 milljónir króna. Maðurinn sem er ákærður fyrir hlutdeild er krafinn um alls eina milljón króna.