
Stuðningsmenn Arsenal gagnrýndu Gary Neville harðlega eftir ummæli hans um meiðsli Ben White í leiknum gegn West Ham í gær.
White fór meiddur af velli eftir samstuð við Crysencio Summerville og sást síðar með spelku á hnénu. Neville taldi varnarmanninn hins vegar ekki hafa verið nógu ákveðinn í tæklingunni.
„Þetta er lélegt hjá bakverðinum. Hann þarf að vera sterkari en þetta. Hann kemur í veg fyrir þetta ef hann er harður,“ sagði Neville í beinni útsendingu Sky Sports.
Ummælin fóru illa í stuðningsmenn Arsenal sem töldu Neville sýna leikmanninum vanvirðingu með því að kenna honum sjálfum um meiðslin.
Einn stuðningsmaður skrifaði meðal annars: „Fallegt hjá Gary Neville að gagnrýna Ben White fyrir skort á hugrekki á meðan hann fer meiddur af velli.“
Fleiri tóku í svipaðan streng og gagnrýndu Neville harðlega.