fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Liverpool gæti fundið arftaka Salah í Frakklandi

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 11. maí 2026 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool hefur áhuga á að fá Maghnes Akliouche til félagsins í sumar samkvæmt franska miðlinum L’Equipe.

Akliouche, sem er 24 ára gamall kantmaður Monaco, er sagður líklegur til að yfirgefa félagið eftir tímabilið og Liverpool er sagt mjög áhugasamt um að klófesta Frakkann.

Talið er að Akliouche kosti um 44 milljónir punda en Liverpool gæti fengið samkeppni um hann frá Paris Saint-Germain.

Getty Images

Akliouche hefur verið einn af lykilmönnum Monaco undanfarin tímabil og spilað 137 leiki fyrir félagið. Þá hefur hann skorað 23 mörk og lagt upp önnur 28 frá því hann braust inn í aðalliðið.

Á yfirstandandi tímabili hefur hann skorað fjögur mörk og átt átta stoðsendingar í 41 leik, bæði sem hægri kantmaður og í hlutverki sínu framarlega á miðjunni.

Mohamed Salah er á förum frá Liverpool í sumar og því hafa margir kantmenn verið orðaðir við félagið undanfarið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar opnar sig um samtal sitt við fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United – Var brugðið þegar hann mætti til starfa á Old Trafford

Arnar opnar sig um samtal sitt við fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United – Var brugðið þegar hann mætti til starfa á Old Trafford
433Sport
Fyrir 2 dögum

City að framlengja við öflugan varnarmann

City að framlengja við öflugan varnarmann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar útskýrir hvers vegna hann dembdi sér í stjórnmálin og valið á flokki – „Ég á samleið með þeim í mörgu“

Arnar útskýrir hvers vegna hann dembdi sér í stjórnmálin og valið á flokki – „Ég á samleið með þeim í mörgu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nýliðarnir leiddir til slátrunnar í Víkinni

Nýliðarnir leiddir til slátrunnar í Víkinni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vonar að Tottenham kaupi miðjumann Bayern endanlega í sumar

Vonar að Tottenham kaupi miðjumann Bayern endanlega í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Íþróttavikan: Fótbolti og pólitík með Arnari Grétars

Íþróttavikan: Fótbolti og pólitík með Arnari Grétars
433Sport
Fyrir 2 dögum

Settur til hliðar eftir að þessi skilaboð urðu opinber – „Ég hef aldrei verið með 15 ára stelpu“

Settur til hliðar eftir að þessi skilaboð urðu opinber – „Ég hef aldrei verið með 15 ára stelpu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Neitar að ræða framtíð Gordon – Bayern hefur hafið viðræður

Neitar að ræða framtíð Gordon – Bayern hefur hafið viðræður