
Það vakti mikla athygli í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar jöfnunarmark West Ham gegn Arsenal undir lok leiks fékk ekki að standa eftir skoðun í VAR. Fyrrum úrvalsdeildardómarinn Mark Halsey segir ákvörðunina hafa verið rétta.
Callum Wilson hélt að hann hefði tryggt West Ham mikilvægt stig í uppbótartíma þegar boltinn fór yfir línuna en eftir langan umhugsnunarfrest var markið dæmt af vegna brots á markverðinum David Raya.
„Þegar maður horfir á þetta sér maður klárlega að Pablo hindrar Raya,“ sagði Halsey og bætti við að einnig hefði Jean-Clair Todibo togað í treyju markvarðarins.
„Það var erfitt fyrir dómarann að sjá þetta í rauntíma, en þess vegna er VAR til staðar. Að mínu mati tóku þeir rétta ákvörðun. Það voru tvö brot þarna,“ sagði Halsey enn fremur.
Þá hrósaði Mikel Arteta dómurunum fyrir hugrekkið að standa við ákvörðunina undir mikilli pressu. „Þegar maður sér þetta aftur er þetta augljóst brot og markið átti að vera dæmt af,“ sagði Arteta.
Arsenal er eftir sigurinn áfram í bílstjórasætinu í baráttunni við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn. Það dugir liðinu að vinna Burnley og Crystal Palace í síðustu tveimur leikjum sínum til að vera krýndir meistarar.