

Arnar Grétarsson, fótboltaþjálfari til margra ára og frambjóðandi Viðreisnar í Kópavogi, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Arnar þjálfaði KA og kom liðinu í Evrópukeppni árið 2022. Síðar varð þó mikið fréttafár af málefnum Arnars og KA vegna ágreinings sem var af fjárhagslegum toga. Það litar þó ekki hvernig hann horfir á félagið í dag.
„KA er svolítið minni útgáfan af Val en þetta er fjölskylduklúbbur sem er mjög skemmtilegur,“ sagði Arnar, sem þjálfaði auðvitað Val eftir að hann var fyrir norðan.
„Ég hef miklar taugar þangað, þó margir haldi annað út af einhverju málaferli. Ég held það séu engin leiðindi og að það sé á báða bóga. Ég átti frábæran tíma þarna.“
Nánar í spilaranum.