
Framtíð Alexis Mac Allister hjá Liverpool virðist óljós, en faðir hans segir að engar viðræður hafi átt sér stað um nýjan samning.
Mac Allister er samningsbundinn Liverpool til ársins 2028, en samkvæmt föður hans, Carlos Mac Allister, hefur félagið ekki rætt framlengingu.
„Alexis er með samning þar til í júní 2028 og við höfum ekki rætt opinberlega við önnur félög,“ sagði hann.
Football Insider segir að Liverpool sé opið fyrir því að selja Mac Allister í sumar ef rétt tilboð berst.
Töluverðar breytingar verða á leikmannahópi Liverpool í sumar, en þekktar stærðir eins og Mohamed Salah og Andy Robertson eru á förum.