
Ástæðan er sú að hann er haldinn sjúkdómi sem kallast Auto-brewery syndrome (ABS), sem veldur því að líkami hans framleiðir áfengi sjálfur.
Sjúkdómurinn gerir það að verkum að líkami hans breytir kolvetnum í alkóhól og hann getur orðið drukkinn án þess að drekka svo mikið sem einn dropa af áfengi. Um afar sjaldgæfan sjúkdóm er að ræða og hafa færri en hundrað tilfelli verið skjalfest í læknisfræðilegum heimildum, samkvæmt frétt New York Post sem fjallar um málið.
Sýknaður af ákæru um ölvunarakstur – Þjáist af „bruggsjúkdómi“
Mongiardo, sem er 43 ára og býr í Flórída, hætti alfarið að drekka áfengi árið 2018 en þrátt fyrir það finnur hann reglulega fyrir áhrifum sem líkjast ölvun – allt frá vægri heilaþoku yfir í meira áberandi einkenni eins og óskýrt tal, samhæfingarleysi og rugl.
Áður en Mongiardo fékk greiningu glímdi hann við einkenni í mörg ár án skýringa. Hann taldi sig einfaldlega vera þreyttan vegna krefjandi starfs sem kennari og íþróttaþjálfari. En veruleikinn reyndist alvarlegri því einkennin höfðu áhrif á störf hans og leiddu að lokum til þess að hann missti vinnuna. Þá var hann einnig ákærður tvisvar fyrir ölvunarakstur á sex mánaða tímabili – þar af einu sinni eftir að hann var hættur að drekka.
„Það höfðu komið upp mörg tilvik þar sem fólk sagðist finna áfengislykt af mér þegar ég hafði ekki drukkið,“ segir hann í viðtali við New York Post.
Það var meltingarlæknirinn Prasanna Wickremesinghe, sem sérhæfir sig í heilkenninu, sem greindi Mongiardo loks með sjúkdóminn. Í svokölluðu glúkósaprófi var Mongiardo látinn drekka sykraðan drykk, en áfengismagn í blóði hans var síðan mælt reglulega. Innan 30 mínútna mældist það 0,09 og hækkaði síðar í 0,14, en það er gildi sem telst ölvun í flestum ríkjum Bandaríkjanna.
„Þegar ég fékk greininguna fór ég að gráta. Loksins hafði ég fengið svar,“ sagði hann.
Einkenni Mongiardo tengjast oft neyslu kolvetna og sykurs, en einnig geta streita og svefnleysi haft áhrif. Í einu tilviki varð hann ölvaður eftir að hafa drukkið úr vatnsflösku sonar síns, en síðar kom í ljós að kökumylsna hafði borist í drykkinn.
Til að halda einkennum í skefjum fylgir hann ströngu mataræði og hefur prófað meðal annars ketó-mataræði og svokallað FODMAP-mataræði. Hann er jafnframt ávallt með áfengismæli með sér og mælir reglulega blóðalkóhól, sérstaklega áður en hann keyrir.
Þrátt fyrir að köstin séu nú sjaldgæfari þarf Mongiardo að sýna varkárni. Meðferð felst meðal annars í mataræði, lyfjum og náinni eftirfylgni sérfræðinga.
Hann segir að óvissan hafi verið erfiðust í upphafi, en að greiningin hafi breytt miklu.
„Þetta hefur gert mig agaðri og meðvitaðri um heilsuna mína,“ segir hann.