fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Forvitnin felldi björninn – Margra klukkustunda viðbragð MYNDBAND

Pressan
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svartbjörn sem sat fastur í tré í Albany í Bandaríkjunum vakti athygli áhorfenda þar sem hann ríghélt sér í greinar trésins og það eftir að lögreglan deyfði hann í nokkurra klukkustunda útkalli á þriðjudag.

Svo virtist sem björninn hefði fest sig í trénu, sem var á hæð við tveggja hæða húsið við hliðina á, um klukkan tvö að nóttu til. Þegar íbúar urðu varir við að björninn hékk enn í trénu árla morguns var hringt á lögregluna, sem mætti á svæðið og reyndi árangurslaust að fá björninn niður.

Lögreglan, með aðstoð frá umhverfisverndarráðuneyti New York-fylkis, ákvað að öruggasta leiðin til að fjarlægja björninn væri að deyfa hann og flytja hann aftur í Catskill-fjöllin.

Lögreglumennirnir settu upp stórt net og undirlag sem myndi taka af fallið þegar björninn félli niður. Var hann deyfður rétt fyrir hádegi, en það tók næstum tvær klukkustundir fyrir deyfiefnið að virka að fullu, eins og sjá má á myndbandi sem fréttamiðillinn CBS6 birti.

Björninn klifraði hærra og hélt áfram að hanga í trénu, áður en hann varð að lokum ringlaður.Að lokum brotnaði ein grein sem hann hékk á. Birninum brá við og hallaði sér hægt aftur á bak, eins og hann væri að reyna að átta sig á hvað hafði gerst, áður en hann missti alveg fótfestuna og datt af greininni og lenti á annarri sterkari grein nær jörð.

Björninn hélt þar örvæntingarfullu taki í nokkrar mínútur í viðbót áður en hann virtist alveg missa meðvitund og féll í öryggisnetið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer