fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Sannleikurinn á bak við MAGA-stjörnuna á Instagram sem þúsundir féllu fyrir

Pressan
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 22:00

Ekki er allt sem sýnist.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ung, ljóshærð og með útlit sem minnti á leikkonuna Jennifer Lawrence tókst Emily Hart að sanka að sér þúsundum fylgjenda á samfélagsmiðlum. Hún deildi efni með skýrum þjóðernis- og íhaldsáherslum sem féll í góðan jarðveg hjá mörgum bandarískum karlmönnum.

En á bak við glansmyndina leyndist allt önnur saga. Emily Hart var ekki til – heldur stóð indverskur læknanemi á bak við persónuna, sem hann skapaði með hjálp gervigreindar og nýtti sér til að græða á vinsældum hennar, að því er fram kemur í umfjöllun WIRED.

Þurfti að ná endum saman

„Ég fékk hugmyndina þegar ég var að reyna að ná endum saman í námi,“ segir læknaneminn, sem kallar sig Sam, í samtali við WIRED. Hann er í sérnámi í bæklunarlækningum og sagðist hafa farið þessa leið til að afla sér aukatekna.

Emily birti gjarnan myndir af sér fáklæddri, oft með bandaríska fánann í forgrunni. Hún höfðaði sérstaklega til karlmanna með myndum þar sem hún drakk bjór, bar MAGA-derhúfu og stundaði veiðar.

Glæsileg og elskar augljóslega Bandaríkin.

Sam segir að hann hafi leitað ráða hjá gervigreindarforritinu Gemini og ákveðið að búa til „heita stelpu“ fyrir „MAGA/íhaldssama markhópinn“, eftir að forritið benti á að slíkur hópur væri oft með meiri ráðstöfunartekjur og meiri tryggð.

Þénaði þúsundir dollara fyrir litla vinnu

Reikningurinn náði skjótum vinsældum og safnaði um 10.000 fylgjendum á innan við mánuði. Myndbönd sem birt voru á reikningnum fengu milljónir áhorfa, sem Sam nýtti sér til tekjuöflunar. Hann seldi meðal annars fatnað með MAGA-tengdu efni og opnaði aðgang á efnisveitunni Fanvue, þar sem áskrifendur greiddu fyrir kynferðislega ögrandi gervigreindarmyndir sem hann bjó til með Grok.

„Ég var kannski að eyða 30 til 50 mínútum á dag og var samt að þéna þúsundir dollara á mánuði,“ sagði hann. „Á Indlandi, jafnvel í sérfræðistörfum, er ekki hægt að þéna svona mikið. Ég hef ekki séð neina auðveldari leið til að græða peninga á netinu.“

„Rosalega heimskt fólk“

Þrátt fyrir vinsældirnar lýsti Sam fylgjendum sínum með neikvæðum hætti. „MAGA-hópurinn er samsettur af heimsku fólki – alveg rosalega heimsku fólki. Og þeir falla fyrir þessu,“ segir hann.

Sérfræðingar telja að þróun gervigreindar hafi gert slíka blekkingu trúverðugri. Valerie Wirtschafter, sérfræðingur hjá Brookings-stofnuninni, sagði við WIRED að hröð þróun tækninnar hafi gert falska prófíla sannfærandi og aukið útbreiðslu þeirra.

Instagram-reikningurinn var tekinn niður í febrúar vegna sviksamlegrar starfsemi. Sam segir þó að hann hafi hvort eð er verið hættur að birta efni.

„Mér finnst ekki eins og ég hafi verið að svíkja fólk,“ sagði hann og bætti við að hann hyggist nú einbeita sér að læknanáminu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer