fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Skyndikynnin enduðu skelfilega – Svalamaðurinn var í hefndarhug

Pressan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 21:00

Wendi Miller og Darren Partch.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sunnudaginn 21. apríl 2019 kom Dean Matheson, 35 ára, heim til sín í Newport Beach í Kaliforníu eftir stutta páskaferð með unnustu sinni. Hann opnaði útidyrnar að húsinu sem hann leigði með vini sínum, hinum 38 ára Darren Partch.

Skítugu diskarnir, sem voru í vaskinum þegar hann fór í frí, voru enn þar. Dean fannst þetta skrýtið og bankaði á herbergisdyrnar hjá Darren til að kann hvort allt væri í lagi en hann fékk engin viðbrögð.

Hann opnaði dyrnar varlega og við honum blasti hryllileg sjón – Tveir blóðugir og naktir líkamar í tvíbreiðu rúmi, karl og kona sem voru augljóslega dáin.

Hann hringdi í neyðarlínuna og sagði að tvennt hafi verið myrt.

Þegar lögreglan kom á vettvang staðfesti Dean að maðurinn í rúminu væri Darren. Konuna hafði hann aldrei áður séð.

Rannsókn lögreglunnar sýndi að þau höfðu verið skotin með 38-kalibera skammbyssu. Það var eins og þau hefðu verið skotin í miðjum samförum af einhverjum sem kom þeim að óvörum.

Lögreglan gat borið kennsl á konuna út frá bílnum hennar. Þetta var hin 41 árs gamla Wendi Miller. Hún átti tvö börn. Nokkrum klukkustundum áður en kennsl voru borin á hana, hafði fjölskylda hennar tilkynnt að hún væri horfin.

Hittust fyrir tilviljun

Það var lítið um sönnunargögn á vettvanginum og lögreglan hafði ekki við mikið að styðjast. Hún reyndi fyrst að komast að hvernig Darren og Wendi hefðu kynnst. Með hjálp vitna komst hún að því að þau höfðu fyrst hist fyrir tilviljun þegar þau voru úti að skemmta sér föstudaginn 19. apríl.

Wendi með börnunum sínum tveimur árum áður en hún var myrt.

 

 

 

 

 

Lögreglan beindi sjónum sínum að fyrrum eiginmanni Wendi. Skilnaður þeirra hafði verið erfiður og hugsanlega orðið til þess að Wendi var ráðin bani. En eiginmaðurinn fyrrverandi var með skothelda fjarvistarsönnun og því þurfti ekki að eyða miklum tíma í að rannsaka þetta.

Darren var einhleypur og var sagður hafa verið góður maður sem átti sér ekki óvini. Hann hafði verið atvinnumaður í íshokkí í átta ár og starfaði í fjármálageiranum eftir að hann lagði skautana á hilluna 2005.

Tengdist atburði í næsta bæ

Á öðrum degi rannsóknarinnar hafði lögreglan í nágrannabænum Irvine samband við lögregluna í Newport Beach.

Lögreglan í Irvine sagði að sama kvöld og Darren og Wendi voru myrt hafi maður klifrað upp á svalir blokkaríbúðar og glápt inn. Konan í íbúðinni sá hann og öskraði. Hann lagði strax á flótta en hleypti nokkrum skotum af skammbyssu.

Kúlurnar fundust og reyndust vera úr 38-kalibera skammbyssu. Konan í íbúðinni sagði manninn hafa verið svartan á hörund, um 173 cm á hæð og um 80 kíló.

Lögreglan við heimili Darren.

 

 

 

 

 

Lögreglan taldi tengsl vera á milli morðanna og „svalamannsins“. Það þótti ekki útilokað að „svalamaðurinn“ kæmi aftur að blokkinni og því var ákveðið að vakta blokkina. Það reyndist snjöll ákvörðun því tveimur dögum síðar kom maður, sem passaði við lýsinguna sem konan gaf, akandi í bíl sem hann lagði síðan við blokkina. Hann sat síðan í bílnum.

Lögreglan kannaði hver væri skráður eigandi bílsins og reyndist það vera Jamon Buggs. Hann hafði áður verið handtekinn fyrir að ráðast á lögreglumann.

Eftir að hafa setið um stund í bílnum, ók Jamon á brott. Honum var veitt eftirför í ómerktum lögreglubíl en Jamon áttaði sig á að honum væri veitt eftirför og jók hraðann.

Úr varð eftirför þar sem hann ók eins og brjálæðingur í gegnum bæinn. Síðan snögghemlaði hann og hljóp á brott. Lögreglumenn sáu að hann var með tösku og óttuðust að vopn væri í henni. Kallað var eftir liðsauka og tókst stórum hópi lögreglumanna að umkringja Jamon og handtaka.

Afgerandi sönnunargögn

Eftir að Jamon var handtekinn fann lögreglan fjölda sönnunargagna. Í fyrrnefndri tösku var 38-kalibera skammbyssa.

Þegar leitað var í bíl hans, fannst minnisbók þar sem nafn Darren, símanúmer og heimilisfang var skrifað.

Þegar „stafræn fortíð“ Jamon var skoðuð kom í ljós að á milli 14. og 19. apríl leitaði hann nokkrum sinnum að heimilisfangi Darren.

Þegar gögn um símanotkun hans voru skoðuð kom í ljós að hann hafði hringt ítrekað í Darren nokkrum vikum fyrir morðin. Lögreglan spurði Dean hvort hann þekkti til Jamon en það gerði hann ekki en vissi að Darren hafði fengið undarleg símtöl frá manni sem bað hann um að halda sig frá kærustunni sinni. Darren sagði Dean að hann hefði hitt þessa konu einu sinni og að síðan hefði hann ekkert frétt af henni.

Wendi Miller og Darren Partch.

 

 

 

 

 

 

Í tölvu Jamon fann lögreglan nafnið Samantha Brewers en Jamon hafði margoft gúgglað það. Hún sagði lögreglunni að Jamon væri einkaþjálfari sem hún hafði kynnst í líkamsræktarstöð. Þau urðu ástfangin og voru par í skamman tíma en síðan batt hún enda á sambandið.

Jamon tók þessu illa og fór að elta hana út um alla. Um miðjan janúar 2019 fékk hún nálgunarbann á hann.

Þegar Samantha var spurð hvort hún þekkti Darren svaraði hún að hún kannaðist við hann úr líkamsræktarstöðinni en að þau hafi ekki átt í ástarsambandi.

Jamon Buggs.

 

 

 

 

 

 

Lögreglan komst einnig að því að mánuði fyrir morðin, hafi Jamon veist að nýja unnusta Samantha. Það gerði þetta enn áhugaverðara  að nýi kærastinn bjó í blokkaríbúðinni sem „svalamaðurinn“ hafði kíkt inn um glugga á.

Skammbyssa Jamon var að sjálfsögðu rannsökuð og reyndist vera vopnið sem hafði verið notað við morðin og á svölunum.

Nú hafði lögreglan næg sönnunargögn til að hægt væri að ákæra Jamon fyrir morðin á Darren Partch og Wendi Miller.

Dómurinn

Réttarhöldin yfir Jamon hófust í lok apríl 2022.

Ákæruvaldið hafði mikið magn sönnunargagna undir höndum og eftir átta daga réttarhöld fór kviðdómurinn afsíðis.

Eftir þriggja klukkustunda umræður komast hann að samhljóða niðurstöðu um að Jamon hefði myrt Darren Partch og Wendi Miller.

Hann var dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu