
Kaitlyn, sem er 27 ára Texasbúi, var að vonum ánægð þegar hún fékk vinnu á leikskóla í hverfinu sínu. Áður en hún mætti í vinnu fyrsta daginn og ákvað að deila sínum innstu hugsunum með Facebookvinum sínum og það varð henni einmitt að falli.
„Ég hata að vera með börnum,“ er það sem hún skrifaði og það segir sig sjálft að þetta eru nú ekki snjöllustu ummælin þegar maður er í vinnu sem snýst um að gæta barna.
En þetta er nákvæmlega það sem Kaitlyn skrifaði og það leið ekki á löngu þar til fólk tók eftir þessu og allt fór á annan endann.
Stöðufærslan fór hraðar um samfélagsmiðla en kvefpest á leikskóla og því leið ekki á löngu þar til yfirmenn leikskólans fréttu af „ástríðu“ hins nýja starfsmanns fyrir starfi sínu.
Kaitlyn þurfti ekki að hafa fyrir því að leita að lyklunum sínum eða smyrja nesti áður en hún fór í vinnuna því áður en hún komst af stað hringdi leikskólastjórinn í hana og skilaboðin voru skýr: „Þú þarft ekki að mæta. Þú ert rekin.“
Kaitlyn var síðan grilluð á samfélagsmiðlum og fólk hélt ekki aftur af háðsglósunum um hana. Hún játar sjálf að tímasetning og orðavalið í færslu hennar hafi ekki verið eins og best var á kosið.
„Ég mun aldrei aftur birta færslu eins og þessa. Það skiptir engu hvernig mér líður,“ sagði hún í samtali við staðarsjónvarpsstöðina og bætti við að hún hati ekki börn, hún hafi bara átt slæman dag.