
Í þessu tæplega fjögurra mínútna langa myndbandi sjást norskir hermenn á æfingu sem undirbýr þá undir innrás Rússa.
Norsku hermennirnir eru þjálfaðir til að berjast í miklum kulda og í fjalllendi. Einn þeirra er Nora. „Það er mjög mikilvægt að við vitum hvernig á að berjast við þessar aðstæður, af því að ef eða þegar til stríðs kemur, þá verðum við að berjast í veðri eins og þessu,“ segir hún í myndbandinu og bætir við: „Ég hef ekki miklar áhyggjur, sérstaklega ekki þegar ég er hér. Ég veit hvað við erum að gera og ég veit að við erum góð í því sem við gerum.“
Herdeild hennar, Finnmerkur-herdeildin, er aðeins nokkurra mánaða gömul. John Olav Fuglem, yfirmaður herdeildarinnar, sagði að hún hafi meðal annars verið sett á laggirnar af því að Finnmörk skipti Rússa mjög miklu máli. Ástæðan er að Kólaskagi, þar sem rússneski kjarnorkuskipa- og kafbátafloti er með heimahöfn, er nærri.
Sunnar, nærri Bodø, er herstöð grafin inn í fjall. Á skjám í stjórnstöð hennar er fylgst með ferðum allra skipa og flugvéla á heimskautasvæðinu að sögn Sky News.
Rune Andersen, varaaðmíráll, sagði að Norðmenn telji sig bera ábyrgð á að vera augu og eyru NATÓ á þessu svæði.