
Tracey Cox, sem er að sögn sérfræðingur í flestu eða öllu því sem við kemur ástarsamböndum, segir að miðað við tölfræðina þá séu eftirtaldar fimm starfsgreinar þær hættulegust þegar kemur að framhjáhaldi.
Flugáhafnir – Það kemur kannski ekki öllum mjög á óvart að flugáhafnir toppi þennan lista. Vinnan er strembin og fólkið fer ótt og títt á milli tímabelta og er fjarri heimili sínu og ástvinum.
Þessi mikla fjarlægð og margar nætur á hótelum veita að sögn Cox góð tækifæri til að halda framhjá án þess að mikil hætta sé á að upp komist.
Hjúkrunarfræðingar og læknar – Heilbrigðisstarfsfólk er undir miklu álagi í vinnunni alla daga. Langar vaktir, skortur á svefni og mikið stress geta endað með skyndiákvörðunum sem eru ekki svo skynsamlegar.
Frumkvöðlar – Frumkvöðlar lifa oft lífi sem er ansi langt frá hinni hefðbundnu 8 til 16 vinnu. Þeir eru vanir að taka áhættu og vilja að hlutirnir séu eftir þeirra höfði.
Sú stjórnsemi, sem þeir viðhafa í fyrirtæki sínu, fylgir þeim oft inn í svefnherbergið eða öllu heldur í leitinni að kynlífi utan heimilisins.
Starfsfólk í fjármálaheiminum – Cox segir að fólk, sem starfar í fjármálageiranum, sé líklegra en aðrir til að sýna af sér ósiðlega hegðun.
Það sé svo mikil samkeppni í þessum geira að margir læri að stytta sér leið til að ná markmiði sínu og hagnast. Þessi tilhneiging til að „svindla“ í vinnunni geti smitast yfir í einkalífið og því sé þetta fólk tölfræðilega séð síður öruggir makar.
Kennarar – Þetta er kannski sú starfsstétt sem kemur mest á óvart að sjá á þessum lista. Kennarar enda oft í framhjáhaldi vegna þess að þeir eru útbrunnir og argir yfir starfi sínu og starfsframa eftir því sem Cox segir.