
Lykillinn er að temja sér venjur sem hafa jákvæð áhrif á skapið og vellíðan. Ef þú vilt lifa hamingjusamara lífi á þessum aldri, þá þarf að kveðja ákveðnar rútínur sem halda hugsanlega aftur af möguleikum þínum.
Eftir því sem segir í umfjöllun elEconomista þá er best að leggja eftirtaldar venjur á hilluna þegar sextugsaldrinum er náð.
Ekki láta aldurinn takmarka þig – Þegar þessum aldri er náð, byrja margir að setja sjálfum sér ákveðnar takmarkanir út frá aldrinum og halda að það sé of seint að læra eitthvað nýtt. Þessi hugsun er ekki bara röng, hún er einnig skaðleg fyrir andlegt heilbrigði. Hættu þessu og leyfðu þér að taka þeim tækifærum, sem hver dagur færir þér, opnum örmum.
Sættu þig við fortíðina – Það er ekkert óeðlilegt við að upplifa nostalgíu og hugsa um liðna tíma. En að berjast gegn breytingum og nýjum aðstæðum getur orsakað stress og óhamingju. Að sætta sig við og aðlagast opnar dyrnar fyrir nýjum upplifunum og möguleikum. Þetta er mikilvægt til að viðhalda jákvæðu hugarfari og lífsgleði.
Gættu að líkamlegu heilbrigði þínu – Það er auðvelt að gleyma að hugsa um líkama sinn í annríki hversdagsins. Hollt mataræði og regluleg hreyfing styrkja ónæmiskerfið, bæta heilbrigði hjartans og koma í veg fyrir sjúkdóma. Þetta er grundvallaratriði sem getur bætt lífsgæðin mikið.
Hættu að erfa hlutina við aðra – Það er þung tilfinningaleg byrgði að erfa hlutina við aðra. Að halda fast í gömul sár og sársauka skaðar andlega heilsu þína. Lærðu að hætta að erfa hlutina sem og að hætta að vera bitur. Ef þú getur það, þá finnur þú innri frið og styrkir tengsl þín við annað fólk.
Æfðu þig í þakklæti – Vertu þakklát(ur) fyrir það sem þú hefur. Þakklæti getur breytt sjónarhorni þínu á hlutina og getur fengið þig til að meta það sem þú hefur nú þegar frekar en það sem þig vantar. Þetta gerir þig ánægðari og þú veitir hinum litlu gleðigjöfum lífsins meiri athygli.
Ekki gleyma áhugamálunum – Ekki gleyma ástríðunni sem gerir lífið þýðingarmikið. Óháð því hvort það er að mála, sinna garðinum eða lesa, þá vekur það gleði að eyða tíma í það sem þú elskar. Áhugamál þín eru næring fyrir sálin og leggja sitt af mörkum til að gera tilveruna betri.
Lifðu í núinu – Það er ekki hægt að breyta fortíðinni og það að dvelja við mistök eða eftirsjá getur drepið gleðina í núinu. Einblíndu á það sem þú hefur núna og notaðu reynslu þína til að vaxa og skapa betri framtíð.
Ekki reyna að gera alla ánægða – Þegar við reynum að uppfylla væntingar annarra, gleymum við oft okkur sjálfum. Að læra að segja nei og setja sjálfan sig í forgang er frelsandi. Það er í góðu lagi að setja eigin þarfir í forgang, það er mikilvægur hluti af hamingjusömu lífi sem er í góðu jafnvægi.