fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Pressan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 19:30

Meðvitundarlaus kona. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta byrjar oft með smávegis tilfinningu í líkamanum. Það er eiginlega ekki hægt að skýra þessa tilfinningu en samt sem áður er hún hunsuð í annríki hversdagsins.

Margir þekkja þetta en fæstir geta gert sér í hugarlund hversu hratt staðan getur breyst.

UNILAD segir að einmitt svona hafi þetta hafist hjá ungri bandarískri stúdínu. Ósköp venjulegt heilbrigðisvandamál endaði með upplifun sem breytti sýn hennar á lífið.

Pamela Nancy var við nám 1990 og vann samhliða því. Vaktirnar voru langar og hún átti fullt í fangi með að finna jafnvægi á milli námsins og vinnunnar. Hún byrjaði síðan að finna fyrir verkjum frá magasári.

Í fyrstu voru einkennin ekki tekin alvarlega en kvöld eitt hrundi hún niður heima hjá sér. Maðurinn hennar hringdi strax í neyðarlínuna og Pamela var strax flutt á sjúkrahús. Læknar komust að því að hún var með innvortis blæðingar og var hún í lífshættu í marga daga.

Pamela segir að meðan hún var meðvitundarlaus hafi upplifun hennar verið sterk og tilfinningarík, þetta hafi hún upplifað aðskilin frá hinum áþreifanlega heimi sem við lifum í.

Hún sagði að umhverfið hafi verið í sterkum litum og mikil ró hafi hvílt yfir öllu. Þess utan upplifði hún einhverskonar nærveru og fannst eins og hún kannaðist við sig, þetta veitti henni öryggistilfinningu.

Hún var síðan dregin til baka á sama tíma og hún komst smám saman til meðvitundar á sjúkrahúsinu.

Hún náði sér fljótt eftir að hún komst til meðvitundar en hún segir sjálf að það sem hún upplifði hafi sett varanlegt mark á hvernig hún skilur lífið. Hún segir að samheldni og samkennd skipti miklu máli og telur að ótti sé það sem myndar gjá á milli fólks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu