fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Pressan
Laugardaginn 25. apríl 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bifreiðaverkstæði í Dalarna í Svíþjóð er kannski ekki augljósasti staðurinn til að byrja mat á bílum. En Hugo Kenger, hjá Kengers Bilservice, hefur vakið athygli fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum varðandi hvaða bílategundir hann vill ekki eiga.

Margir leggja leið sína til hans til að fá ráð varðandi bílakaup og hann liggur ekki á skoðunum sínum.

Hann er ekki mjög hrifinn af frönskum bílum og segir að Renault, Peugeot og Citroen séu oft byggðir á hátt sem gerir viðgerðir á þeim óþarflega tímafrekar.

Magnus Andersson, hjá Visby Bilservice, er sömu skoðunar en hann segir að franskir bílar virki vel þar til eitthvað bilar í þeim. Þegar það gerist, séu bæði greiningin og viðgerðin erfiðari en á mörgum öðrum bílategundum.

Andersson er heldur ekki hrifinn af Land Rover. Hann segir viðgerðir á þeim dýrar og varahlutirnir séu oft mjög dýrir. Carup.se skýrir frá þessu.

Það þarf kannski ekki að koma á óvart að sænsku bifvélavirkjarnir séu hrifnir af Volvo og segi það vera góða bíla sem þoli erfiðar aðstæður vel og að flestir geti fundið módel við sitt hæfi.

Þeir benda bílkaupendum á að skoða aðgengi að verkstæðum, verð á varahlutum og aðgengi að sérfræðingum áður en þeir kaupa bíl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“