
Ef þú ert meðal þeirra sem skella beikoninu í airfryer þá skaltu lesa lengra því sérfræðingur varar fólk við að nota airfryer þegar beikon er eldað.
Airfryer er nútímahetja eldhússins enda einstaklega þægilegt tæki sem sparar oft mikla vinnu og tíma. En þegar kemur að beikoni er samband tækisins og kjötsins ekki mjög gott.
Næringarfræðingurinn Brenda Peralta sagði í samtali við Huffington Post að fituríkur matur og airfryer séu „match made in hell“.
Hér eru helstu ástæðurnar fyrir því að þú skalt hugsa þig vel um áður en þú setur beikon í airfryer:
Eldhúsið líkist og lyktar eins og eldsvoði í sláturhúsi – Beikon er mjög fituríkt og í airfryer á fitan það til að safnast í botninum og byrja að senda reyk frá sér. En það sem er enn verra er að fitan getur sprautast á hitaelementið og það getur valdið mikilli reykmyndun og lykt sem minnir á brunninn grís. Þessi lykt getur setið föst í gardínunum næstu daga. Ef svo illa vill til að þetta gerist, þá skaltu bíða þar til airfryerinn er orðinn alveg kaldur. Þá getur þú fjarlægt brunaleifarnar varlega með blautum svampi.
Hætta á matareitrun – Airfryerinn er snilldartæki fyrir ýmsar matvörur en það getur verið ansi erfitt að elda beikon jafnt í honum. Þú átt á hættu að sitja uppi með beikon með stökka enda en hrátt í miðjunni. Heilbrigðissérfræðingar segja að vansteikt beikon geti valdið slæmri matareitrun með öllu því sem henni fylgir.
Skortur á plássi og hentar ekki fyrir Instagram – Beikon skreppur saman og krullast þegar það hitnar. Í Airfryer kastast þunnar beikonsneiðar fram og aftur í öflugu loftstreyminu og þess vegna er útilokað að snúa þeim almennilega. Ef þú vilt útbúa máltíð, sem er hægt að monta sig af á Instagram, þá eru á rangri leið því þú endar líklega með stafla af krumpuðum og óásjálegum sneiðum.
Ef þú vilt gera beikonið aðeins hollara og notast við örugga eldamennsku, þá stinga sérfræðingar upp á að það sé sett í örbylgjuofn. Leggðu það á eldhúspappír sem getur dregið aukafituna í sig. Þannig færðu stökkt beikon án þess að eldhúsið fyllist af reyk og það sprautast heldur ekki fita út um allt.