fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Talsmaður rússneskra stjórnvalda segir hrun ESB færast enn nær í kjölfar ósigurs Orbáns

Pressan
Laugardaginn 25. apríl 2026 14:30

Viktor Orban fráfarandi forsætisráðherra Ungverjalands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í kjölfar kosninganna í Ungverjalandi mun hrun ESB eiga sér stað fyrr en ella.“ Þetta sagði Kirill Dmitriyev, sérstakur útsendari Rússlands, í kjölfar ósigurs Viktor Orbáns, forsætisráðherra, í þingkosningunum í Ungverjalandi.

Hann lét þessi ummæli falla í athugasemd við færslu breska öfgahægrimannsins Tommy Robinson á X. Þar sagði Robinson að „Ungverjaland sé fallið“.

„Dauði Evrópu breiðist út,“ skrifaði Robinson.

Margir evrópskir leiðtogar fögnuðu ósigri Orbáns, sem hefur verið dyggur handbendi Vladímír Pútíns og Donald Trump, ekki síst í ljósi þess að arftaki hans, Péter Magyar, hefur heitið því að endurbyggja samband Ungverjalands við ESB og NATÓ. Þetta samband hefur átt í vök að verjast síðustu 16 árin vegna Orbáns.

Rússneski talsmaðurinn telur að ósigur Orbáns muni verða til þess að ESB hrynji til grunna. „Sjáið til eftir fjóra mánuði hvort ég hafi haft rétt fyrir mér,“ skrifaði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“