fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Sharon Osbourne setur villuna á sölu – Sjáðu verðmiðann og myndirnar

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 8. apríl 2026 19:30

Sharon Osbourne ætlar að selja villuna í Los Angeles.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sharon Osbourne, ekkja þungarokksstjörnunnar Ozzy Osbourne, hefur sett villuna sem þau bjuggu saman í Los Angeles á sölu. Talið er líklegt að Sharon eyði síðustu árunum heima í Bretlandi.

Eins og segir í frétt rokkmiðilsins Blabbermouth er verðmiðinn á villunni 17 milljónir dollara. Það er um 2,1 milljarður íslenskra króna.

Húsið var byggt árið 1929 í hverfinu Hancock park, miðsvæðis í Los Angeles. Húsið er um 930 fermetrar að stærð, með sex svefnherbergjum og ellefu baðherbergjum. Það var byggt í Miðjarðarhafs-stíl. Gestahús er á lóðinni.

Ozzy og Sharon keyptu húsið árið 2015 á tæpar 12 milljónir dollara. Fyrri eigandi var kvikmyndaframleiðandinn Oren Koules, sem er best þekktur fyrir gerð hryllingsmyndanna Saw. Koules, sem hafði keypt húsið á aðeins 4,2 milljónir árið 2010 endurnýjaði það algerlega að innan.

Osbourne hjónin settu húsið á sölu árið 2022 með 18 milljón dollara verðmiða en ekkert varð úr sölu þá. Á þeim tíma var Ozzy orðinn mjög veikur af Parkinsons sjúkdómi, sem á endanum dró hann til dauða í fyrrasumar. Ætluðu hjónin að flytja til Bretlands.

Búist er við því að Sharon flytji alfarið til Bretlands, en hún á einnig villu þar. Það er nítjándu aldar hús í bændum Jordans í Buckinghamskíri sem Osbourne hjónin keyptu árið 1993.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum