fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Eyjan

Davíð Þór Björgvinsson: Margt sem bendir til þess að Ísland geti fengið ásættanlega niðurstöðu um sjávarútveginn og kannski landbúnaðinn líka

Eyjan
Laugardaginn 4. apríl 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Evrópa gerði það sem Donald Trump krafðist, og stórjók útgjöld til varnarmála og sneri bökum saman, virðist sem Bandaríkjunum hafi mislíkað það. Voru viðbrögð Evrópu þó mjög fyrirsjáanleg, hefðu menn hugsað dæmið til enda. Nú virðist blasa við að Evrópusambandið er tilbúið að taka tillit til sérstöðu Íslands í sjávarútvegi, enda hefur stækkunarstjórinn gefið yfirlýsingu um það. Margt bendir til þess að nú sé kjörtími til að ná góðum aðildarsamningi fyrir Ísland. Davíð Þór Björgvinsson, forseti lagadeildar HA og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstólinn, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Davíð Þór Björgvinsson - 3
play-sharp-fill

Davíð Þór Björgvinsson - 3

Það eru mjög margir sem gera fastlega ráð fyrir því að það komi bara ágætis samningur út úr þessu fyrir Ísland.

„Já, það sem ég skil af umræðunni, ég er nú ekkert innsti koppur í búri í þessu. Ég er nú bara að fylgjast með þessu eins og hver annar. Það sem kemur fram í greinargerðinni með þingsályktunartillögunni og í umræðunni um þetta er að ríkisstjórnin að minnsta kosti metur það svo að þetta sé góður tímapunktur sem gefi tækifæri á að ná betri samningi en annars væri. En auðvitað á það bara eftir að koma í ljós. Það er að vísu áhugavert að hlusta á stækkunarstjórann þessa dagana sem áréttar það, og sérstök yfirlýsing sem var gefin út af því tilefni að þessi þingsályktunartillaga kom fram, að Evrópusambandið væri meðvitað um það að hvert ríki hefði sína sérstöðu og sína hagsmuni og sjávarútvegurinn sérstaklega nefndur í því og svo framvegis. Það getur vel verið að pólitíkin í Evrópusambandinu sé þannig að það sé svigrúm til þess að ná samningi sem þjóðin getur sætt sig við um þau málefni og þá kannski landbúnaðinn líka, ég skal ekki segja.“

Nú, atburðarásin í heimspólitíkinni, síðustu kannski 15 mánuði eða svo, hefur verið með þeim hætti að það kann að vera að Ísland sé miklu, það sé miklu mikilvægara að mati Evrópusambandsins að fá inn Ísland en var kannski áður en allt fór á hvolf í heimsmálunum.

„Ef þú horfir á landakortið og svona hvernig afstaða Íslands er landfræðilega til meginlandsins og nágrannaríkjanna á Norðurlöndunum. Þá sjáum við að Ísland er þarna eyja í miðju Atlantshafi og frá sjónarhóli Evrópusambandsins þá lítur það að minnsta kosti vel út á kortinu ef allt þetta svæði er fellt undir yfirráðasvæði Evrópusambandsins. Og á þessum tímum þar sem við erum að ræða þessi öryggismál, þá er ekkert óvarlegt að álykta að vilji Evrópusambandsins til þess að ná þessu undir sig eða undir sinn væng, skulum við segja, eða hvernig hluti af Evrópusambandinu, hvernig maður vill orða það, sé meira freistandi en áður. En það er líka annað í þessu sem að, það sé hreyfing sem er komin innan Evrópu og samstaða ríkja um það að þau þurfi að treysta varnir sínar og svo framvegis. Hvaðan kemur þetta? Hver er rótin af þessu? Það er Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sem hefur gert þá kröfu til Evrópuríkja, gefur það til kynna að bandarískir skattgreiðendur væru kannski ekkert sérstaklega spenntir fyrir því að borga mikið lengur fyrir öryggi í Evrópu. Evrópumenn yrðu sjálfir að taka ábyrgð á þessu. Og ég skil þetta þannig að viðbrögðin við þessum kröfum Bandaríkjanna eru að Evrópuríkin eru að þjappa sér saman.“

Þau eru að gera það, þau eru að stórauka útgjöld til varnarmála.

„Já, þannig að þetta er í beinu samhengi við það, en það mætti ekki kannski neitt sérstökum velvilja, af því að um leið sem að var kannski viðbúið, ef menn hefðu hugsað það alveg til enda, að þessi aukna samstaða Evrópu gæti líka svolítið farið í taugarnar á Bandaríkjamönnum um leið, sem teldu sig missa einhvern veginn spón úr aski sínum?“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu
Hide picture