fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fókus

Mistökin sem við gerum í matvöruversluninni sem geta gert innkaupin enn dýrari

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 10. mars 2026 15:30

Mynd er úr safni. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan er orðin 15.30 og styttist í lok vinnudags hjá mörgum, og viðkomu í matvöruverslun á heimleiðinni. Við höfum öll heyrt þá gullnu reglu að versla ekki í matinn þegar við erum svöng, því þannig eiga ótal margar girnilegar vörur og jafnvel dýrar, og dýrari en við ætluðum að kaupa, eftir að lenda í innkaupakerrunni.

Prófessor í neytendasálfræði,  Cathrine Jansson-Boyd, við Anglia Ruskin háskólann í Bretlandi, segir marga neytendur mjög venjubundna þegar kemur að matvöruinnkaupum, við förum alltaf í sömu verslunina og kaupum sömu vörur í hverri viku, sem geti leitt til hækkunar á innkaupunum.

Með því að vera meðvitaður um eigin innkaupavenjur og gera nokkrar breytingar á þeim getum við dregið úr kostnaðinum að hennar mati. Hér eru nokkur góð ráð sem allir ættu að geta tamið sér:

Farðu yfir ísskápinn, frystinn og matarskápa

Jansson-Boyd bendir á að margir hafi ekki hugmynd um hvað leynist mikið af matvöru í skápunum, ísskápnum og frystinum þeirra.

„Þetta er sérstaklega algeng leið til að sóa peningum, þar sem margar vörur eru ónotaðar, renna út og enda að lokum í ruslinu,“ segir hún.

Verslaðu aldrei án þess að setja þér fjárhagsáætlun og farðu ekki yfir þá upphæð

Að hafa ákveðna upphæð í huga sem þú ætlar að eyða í matvöruversluninni mun hjálpa þér að halda þér á tánum og fylgjast með tilboðum, þannig að þú getur forðast að eyða of miklu í hvert og eitt skipti.

Ef þetta er eitthvað sem þú hefur átt í erfiðleikum með, mælir Jansson-Boyd með að þú skráir þig í hollustuforrit matvöruverslana og notir einnig „skannaðu og verslaðu“ sem boðið er upp á í nokkrum verslunum, þar sem þú getur í rauntíma fylgst með hvað það sem komið er í körfuna kostar.

Hérlendis bjóða Bónus (Gripið og greitt) og Krónan (Skannað og skundað) upp á þennan verslunarmöguleika í mörgum verslanna sinna.

Víkið frá uppskriftinni

Ef þið farið með ákveðna uppskrift í matvöruverslunina til að versla eftir þá eruð þið líklega að skipuleggja að kaupa öll hráefnin sem uppskriftin telur upp. Jansson-Boyd  segir það vera mistök og mælir frekar með að vera skapandi við matreiðsluna til að spara peninga.

„Þið þurfið ekki að kaupa allt sem talið er upp í uppskriftinni. Athugið fyrst hvað er til heima til að sjá hvort það er eitthvað sem má nota í staðinn.“

Til dæmis gætirðu átt mikið af (ónotuðum) kryddum heima fyrir sem nota má í staðinn fyrir að kaupa enn eitt kryddið, sem dagar svo uppi í kryddskúfunni.

Ekki fara alltaf í sömu matvöruverslunina

Matvöruverð er mismunandi eftir verslunum, svo það getur verið ódýrara að versla annars staðar. Það sama á við um þá sem versla á netinu, því þú ert líklega með innkaupalistann þinn skráðan á vefsíðuna og heldur bara áfram að panta sömu vörurnar aftur og aftur.

„Það getur verið kostnaðarsamt ef þú fylgist ekkert með verðbreytingum og berð ekki verslanir saman,“ varar Jansson-Boyd við.

Notaðu körfu, ekki innkaupakerru

Þegar karfan fyllist og verður þung, hættir þú að versla miklu fyrr en þú myndir gera með stóra innkaupakerru.

Ekki horfa bara á verð hlutar

Vertu viss um að skoða líka kílóverðið og ekki kaupa vörur á afslætti bara af því þær eru merktar á afslætti.

„Skilti sem tengjast útsölum og almennir afslættir vekja athygli fólks (oft ósjálfrátt) og þótt við einblínum á lága verðið berum við ekki saman hvort það sé í raun gott verð,“ segir Jansson-Boyd. Vara sem er merkt með afslætti er ekki endilega ódýrari en vara sem er ekki með afslætti.

Forðist að kaupa vörur í magnpakkningum

Jansson-Boyd mælir ekki með að kaupa vörur í magnpakkningum, nema þú munir virkilega nota alla vöruna/pakkninguna áður en hún rennur út. Það sparar engan veginn í heimilisbókhaldinu að kaupa vörur ódýrari í magnpakkningum ef hluti þeirra endar svo í ruslinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans